Skip to main content

Háskólatónleikar: Krummi í streymi frá Stúdentakjallaranum

Háskólatónleikar: Krummi í streymi frá Stúdentakjallaranum - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
24. mars 2021 14:00 til 14:30
Hvar 

Stúdentakjallarinn og í streymi

Nánar 
Aðgangur ókeypis
Öll velkomin

Tónlistarmaðurinn Krummi Björgvinsson treður upp ásamt meðspilurum á Háskólatónleikum í Stúdentakjallaranum 24. mars kl. 14. Þetta verður í fyrsta sinn sem áhorfendur verða leyfðir á tónleikum í vetur en þeim verður líka streymt.

Slóð á streymi frá tónleikunum

Háskólatónleikaröðin hóf göngu sína með nýjum áherslum síðasta haust og hafa þau Mikael Máni, Dymbrá, Umbra, Kælan mikla og Sóley öll troðið upp við góðan orðstír og vel það. Tónleikunum hefur öllum verið streymt með glæsibrag og má nálgast upptökur hér.

Það er með alveg sérstöku stolti sem Háskólatónleikarnir kynna Krumma til sögunnar en hann mun troða upp í Stúdentakjallaranum ásamt meðspilurum þann 24. mars kl. 14. Stúdentakjallarinn er afar notalegt og stíliserað afdrep á háskólasvæðinu og þjónar þar stúdentum, kennurum og hverjum þeim sem líta vill við.

Krummi Björgvinsson hefur nú verið starfandi sem tónlistarmaður í tvo áratugi og var hann t.d. í forvígi rokksveitarinnar Mínus upp úr aldamótum. Krummi er bæði fjölsnærður og leitandi og til marks um það hefur hann sinnt margvíslegum og ansi ólíkum tónlistarverkefnum, t.a.m. kuldarokkssnilldinni LEGEND. Sem sólólistamaður hefur hann hins vegar leitað í brunn kántrís, þjóðlagatónlistar og blús og er fyrsta breiðskífa hans með slíku efni væntanleg nú í vor. Lög með Krumma hafa ómað á öldum ljósvakanna undanfarin misseri og það verður spennandi að sjá þau viðruð í notalegum salarkynnum Stúdentakjallarans.

Tónleikarnir fara fram miðvikudaginn 24. mars og hefjast leikar kl. 14 sem fyrr segir. Tónleikunum verður streymt en Stúdentakjallarinn er auk þess með opið fyrir gesti. Um er að ræða tvö sóttvarnarhólf og komast 40 gestir fyrir í hvoru þeirra, alls 80 manns. Gildandi sóttvarnarreglum er fylgt og eru væntanlegir gestir beðnir um að spritta sig vel og bera grímu þar til sest er við borð. Einnig er hægt er að njóta tónleikana síðar í upptökuformi. Allir velkomnir og aðgangur gjaldfrjáls.

Um Háskólatónleika
Um áratugabil, og raunar í hálfa öld, hefur það verið hefð í Háskóla Íslands að standa fyrir svofelldum Háskólatónleikum. Um mánaðarlega viðburði er að ræða, á haust- og vormisseri, og fara þeir fram í byggingum háskólans. Nýr umsjónarmaður tónleikaraðarinnar og listrænn stjórnandi er dr. Arnar Eggert Thoroddsen og segist hann styðjast við slagorðið „Háskóli fyrir alla - Tónlist fyrir alla“ á þessum vetri. Fólk geti búist við tónlist sem tilheyri alls kyns geirum, svosem poppi/rokki, djass, klassík og bara því sem álitlegt þykir hverju sinni.

Tónlistarmaðurinn Krummi Björgvinsson treður upp ásamt meðspilurum á Háskólatónleikum í Stúdentakjallaranum 24. mars kl. 14. Þetta verður í fyrsta sinn sem áhorfendur verða leyfðir á tónleikum í vetur en þeim verður líka streymt.

Háskólatónleikar: Krummi í streymi frá Stúdentakjallaranum