Skip to main content

Háskólahermirinn

Háskólahermirinn - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
30. janúar 2020 8:30 til 31. janúar 2020 15:00
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Háskólahermirinn fer fram í Háskóla Íslands dagana 30. og 31. janúar. Þetta er í fimmta sinn sem skólinn stendur að viðburðinum.

Markmið Háskólahermisins er að gefa ungu fólki tækifæri til að kynnast starfsemi og námsframboði Háskólans af eigin raun og um leið styðja það í að taka upplýsta ákvörðun um nám og starf í framtíðinni. Jafnframt er verkefnið liður í að efla frekar samstarf Háskóla Íslands við framhaldsskóla landsins.

Í Háskólaherminum býðst framhaldsskólanemum að vera virkir þátttakendur í háskólasamfélaginu. Hver og einn þátttakandi heimsækir fjögur af fimm fræðasviðum skólans og kynnir sér námsframboð þar á lifandi og fjölbreyttan hátt. Dagskráin fer fram víða á háskólasvæðinu sem gefur þátttakendum jafnframt tækifæri á að kynna sér aðstöðu og víðtæka þjónustu skólans við nemendur.

Háskólahermirinn fer fram í Háskóla Íslands dagana 30. og 31. janúar. Þetta er í fimmta sinn sem skólinn stendur að viðburðinum.

Háskólahermirinn