Skip to main content

Handritin, tilfinningar og hugurinn á miðöldum

Handritin, tilfinningar og hugurinn á miðöldum - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
21. apríl 2026 12:00 til 13:00
Hvar 

Edda

fyrirlestrasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Sif Ríkharðsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, flytur fyrirlestur í Eddu þriðjudaginn 21. apríl kl. 12 í tengslum við sýninguna Heimur í orðum.

Í erindi þessu verður fjallað um handritin sem tilfinningalegan menningararf. Þannig má líta á handritin sem sögulegar minjar sem hafa tilfinningalegt gildi fyrir okkur í dag en þau eru á sama tíma einnig menningararfleifð sem hefur að geyma minningar um hugarheim forfeðra okkar, þar með talið hugmyndir þeirra um tilfinningar.

Handritin og þeir textar sem þau hafa að geyma leggja þannig grunninn að frekari umfjöllun um tilfinningar á miðöldum og hvernig miðaldamenn gætu hafa skilið þær og hversu mikið af okkar eigin tilfinningalífi við getum yfirfært á fornaldir og aðra menningarheima. Kenningar miðaldamanna um líkamann og hlutverk hans höfðu áhrif á hvernig grunneiginleikar mannlegs eðlis voru túlkaðir, þar með taldar hugmyndir um hugann, efnisleika líkamans og ekki síst tilfinningar sem líkamlegt, menningarlegt og andlegt fyrirbæri.

Í þessu erindi munum við velta vöngum yfir því hvernig handritin sem menningararfur geta leitt saman hugmyndir nútímamannsins um tilfinningar og tilfinningaheim forfeðra okkar.

Sif Ríkharðsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, flytur fyrirlestur í Eddu þriðjudaginn 21. apríl kl. 12 í tengslum við sýninguna Heimur í orðum. Í erindi þessu verður fjallað um handritin sem tilfinningalegan menningararf. Þannig má líta á handritin sem sögulegar minjar sem hafa tilfinningalegt gildi fyrir okkur í dag en þau eru á sama tíma einnig menningararfleifð sem hefur að geyma minningar um hugarheim forfeðra okkar, þar með talið hugmyndir þeirra um tilfinningar.

Handritin, tilfinningar og hugurinn á miðöldum