Skip to main content

Grænir dagar - True Cost: heimildarmynd

Grænir dagar - True Cost: heimildarmynd - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
4. mars 2020 19:00 til 22:00
Hvar 

Stúdentakjallarinn

Nánar 
Viðburðurinn fer fram á ensku

Sýning heimildarmyndarinnar True Cost er hluti af dagskrá Grænna daga. 

Sýning heimildarmyndarinnar hefst klukkan 19:00 og eftir hana verða umræður um hvernig stuðla má að lausnum í baráttunni gegn hraðtísku eða „fast fashion“.

Andri, annar stofnenda Barnaloppunnar og Extraloppunnar og Halla Hákonardóttir og Helga Kjerúlf, stofnendur USEE STUDIO tala um sína sýn á lausnir í þessum efnum.

Halla og Helga munu kynna hugmyndafræði stofunnar og fjalla um núverandi verkefni USEE STUDIO. Stofan leggur áherslu á sjálfbær og siðferðisleg sjónarmið í hönnunarferlinu og framleiðir vörur á sem umhverfisvænstan og mannúðlegasta máta. Til að mynda hefur stofan kynnt vörulínur gerðar úr afgangs efnum, klæðnað úr gömlum efnalagerum, skartgripi úr afgangs speglum, plaköt úr endurunnum pólyester og teppi úr endurunnum bómull.

Andri mun ræða um hugmyndafræðina bak við bæði Barnaloppuna og Extraloppuna. Búðirnar eru reknar með umhverfisvernd og endurnýtingu að leiðarljósi þar sem notuð föt og hlutir eru seldir.

Eftir það verður opið fyrir spurningar til þeirra.

The True Cost er mynd sem sýnir þau áhrif sem hraðtíska hefur á jörðina og loftslagið. Myndin sýnir hverjir búa til fötin okkar og hvaða aðferðir eru notaðar. Verð á fötum hefur verið á hraðri niðurleið síðustu áratugi og samhliða hafa neikvæð áhrif á umhverfið og fólk vaxið gríðarlega.

Viðburðurinn fer fram á ensku.

Staðurinn er með hjólastólaaðgengi en hluti staðarins er ekki fær notendum hjólastóla. Vinsamlegast hafið samband ef þörf er á túlkun, táknmálstúlkun eða öðru sem tengist aðgengi á viðburðinn.

Grænir dagar fara fram í Háskóla Íslands dagana 2. - 6. mars. Þema ársins er aktívismi og að finna lausnir við loftslagsvánni og fjölmargir viðburðir eru á dagskránni, svo sem fyrirlestrar, markaðir og kvikmyndir tengdir umhverfismálum. Grænir dagar 2020 eru skipulagðir af Gaia Iceland nemendafélagi meistaranema í Umhverfis- og auðlindafræði, í samvinnu við Umhverfis- og samgöngunefnd Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Dagskrá Grænna daga má finna á Facebook

Grænir dagar fara fram í Háskóla Íslands dagana 2. - 6. mars. Þema ársins er aktívismi og að finna lausnir við loftslagsvánni og fjölmargir viðburðir eru á dagskránni, svo sem fyrirlestrar, markaðir og kvikmyndir tengdir umhverfismálum. Grænir dagar 2020 eru skipulagðir af Gaia Iceland nemendafélagi meistaranema í Umhverfis- og auðlindafræði, í samvinnu við Umhverfis- og samgöngunefnd Stúdentaráðs Háskóla Íslands. 

Grænir dagar - True Cost: heimildarmynd