Grænir dagar - List og umhverfismál

Veröld - Hús Vigdísar
Stofa 023
Listræn nálgun á umhverfismálin.
Á lokadegi Grænna daga munum við ræða um það hvernig listafólk notar mismunandi miðla til að vekja athygli á umhverfismálum. Rúrí, myndlistarmaður, Katrín María Káradóttir, fagstjóri í fatahönnun hjá LHÍ og Rakel Garðarsdóttir, framkvæmdastjóri Vesturports, munu flytja erindi og að þeim loknum verða pallborðsumræður í fyrirlestrasal Veraldar. Vigdís Fríða, félagsfræðingur og verkefnastjóri hjá Landvernd, verður fundarstýra.
Rúrí er einn virtasti listamaður þjóðarinnar. Verk hennar eru hugmyndafræðilegs eðlis og notast Rúrí við margskonar miðla við framsetningu verka sinna, svo sem skúlptúr, gjörninga, ljósmynd og hljóðverk. Verk hennar draga oft athygli að aðstæðum í samfélaginu eða í náttúrunni og hefur hún fjallað um umhverfismál í mörgum verka sinna. Hún er m.a. þekkt fyrir útilistaverk eins og Regnbogann við flugstöðina í Keflavík og Fyssu í Grasagarðinum í Reykjavík, einnig innsetningar eins og Glerregn sem sýnt var vorið 2001 í Listasafni Íslands og PARADÍS? – Hvenær? sem sýnt var á Kjarvalsstöðum fyrir nokkrum árum.
Katrín María Káradóttir er dósent og fagstjóri í fatahönnun við Listaháskóla Íslands. Katrín stundaði nám í klæðskurði í Reykjavík og fatahönnun í París. Hún hefur víðtæka reynslu á sviðum tilraunakenndrar sníðagerðar, hönnunar, listrænnar ráðgjafar og samstarfs, óhefðbundnum textíl og formum. Katrín er frumkvöðull í „slow fashion“, eða hægri tísku, á Íslandi og hefur áhuga á að byggja upp ný kerfi þar sem sjálfbærni og meðvitund um bæði uppruna og endalok textíls er í fyrrirúmi.
Rakel Garðarsdóttir er framleiðandi hjá Vesturporti. Hún er barátturkona fyrir umhverfið og trúir staðfastlega á orð Gandhis “be the change” og stofnaði því samtökin Vakandi. Vakandi eru stærstu félagasamtök á sviði matarsóunar á Ísland og vinna að því að auka vitundavakningu í þeim efnum.
Rakel hefur meðal annars unnið með ríkisstjórninni að því að leysa vandamál matarsóunar, og hefur einnig setið í dómnefnd Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs síðan 2018. Rakel er þekktur frumkvöðull hér á landi og hefur meðal annars stofnað snyrtivörufyrirtækið Verandi.
Eftir viðburðinn verður boðið upp á veitingar.
Viðburðurinn fer fram á ensku.
Salurinn er aðgengilegur hjólastólum efst og neðst (en ekki í brekkunni þar sem flest sætin eru). Vinsamlegast hafið samband ef þörf er á túlkun, táknmálstúlkun eða öðru sem tengist aðgengi á viðburðinn.
Grænir dagar 2020 eru skipulagðir af Gaia Iceland, nemendafélagi meistaranema í Umhverfis- og auðlindafræði, í samstarfi við Umhverfis- og samgöngunefnd SHÍ.
Grænir dagar 2020 eru skipulagðir af Gaia Iceland, nemendafélagi meistaranema í Umhverfis- og auðlindafræði, í samstarfi við Umhverfis- og samgöngunefnd SHÍ.
