Skip to main content

Fuglaskoðun í Grafarvogi - Með fróðleik í fararnesti

Fuglaskoðun í Grafarvogi - Með fróðleik í fararnesti - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
23. apríl 2022 11:00 til 13:00
Hvar 

Grafarvogi – við kirkjuna

Nánar 
Aðgangur ókeypis
Öll velkomin

Þegar farfuglarnir flykkjast heim að fögru landi ísa er vorið komið og sumarið á næsta leiti með sínum fagra fuglasöng. Sölvi Rúnar Vignisson, doktorsnemi við HÍ og kennari við skólann, mun leiða fuglaskoðunarferð ásamt fleiri fuglafræðingum um fjöruna í Grafarvogi laugardaginn 23. apríl. Farfuglar safnast gjarnan saman í stórum hópum í Grafarvogi á vorin og því verður vafalítið margt að sjá. Gott er að koma með sjónauka og gjarnan fuglabækur. Gangan hefst kl. 11 og tekur 2 klst.   

Sölvi Rúnar hefur leitt þetta verkefni í ófá skipti ásamt fuglafræðingunum Gunnari Þór Hallgrímssyni og Tómasi Grétari Gunnarssyni úr HÍ en sá síðartaldi er einmitt einn leiðbeinenda Sölva í doktorsverkefninu.

Gangan hefur hins fallið niður undanfarin tvö ár vegna COVID-19 og nú er kjörið tækifæri að rifja upp kynnin við vængjaði vini þjóðarinnar.

Doktorsrannsókn Sölva Rúnars er helguð tjaldinum – þeim fagra fugli og vafalítið ber hann fyrir augu í Grafarvogi.

Með fróðleik í fararnesti

Fuglagangan er hluti af samstarfsverkefni Ferðafélags Íslands og Háskóla Íslands: Með fróðleik í fararnesti sem hefur staðið yfir frá aldarafmæli Háskóla Íslands árið 2011. Verkefnið fagnar því ellefu ára afmæli á þessu ári.

Þátttaka er ókeypis og öll velkomin. Ekkert að panta, bara mæta!  
Mæting er kl. 11 við Grafarvogskirkju – hægt er að leggja bílum við kirkjuna.

Þegar farfuglarnir flykkjast heim að fögru landi ísa er vorið komið og sumarið á næsta leiti með sínum fagra fuglasöng.  Þátttaka er ókeypis og öll velkomin. Ekkert að panta, bara mæta!

Fuglaskoðun í Grafarvogi - Með fróðleik í fararnesti