Skip to main content

FRESTAÐ - Opnunarhóf GPMS

FRESTAÐ - Opnunarhóf GPMS - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
24. september 2020 16:00 til 17:00
Hvar 

Sturlugata 8

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Ath. vegna heimsfaraldurs kórónaveiru sem nú er að ná sér aftur á strik hér á landi hefur verið ákveðið að aflýsa opnunarhófi GPMS. Í staðin mun skráning í þessa nýju umgjörð utan um doktorsnám í læknavísindum opna inni á nýrri vefsíðu GPMS á næstu dögum. Fylgist með! 

---------------

Nú hefur göngu sína nýtt prógram fyrir framhaldsnema í faraldsfræði, klínískum læknavísindum og yfirfærsluvísindum (e. Translational science) við Háskóla Íslands undir heitinum Graduate Program in Medical Science (GPMS).

Markmiðið með GPMS er að veita þessum nemum umgjörð utan um námið með reglulegum viðburðum og stuðningi í náminu.

Skráning í GPMS opnar nú í haust og til að fagna því verður haldinn opnunarviðburður verkefninu í Tjarnarsalnum í húsi Íslenskrar Erfðagreiningar á Sturlugötu 8, kl. 16 þann 24. sept. Markmiðið er að gleðjast saman og kynnast.

Hlökkum til að sjá ykkur á staðnum eða á fjarfundi.