Skip to main content

FRESTAÐ // Menntastefna: Hver mótar framtíðina?

FRESTAÐ // Menntastefna: Hver mótar framtíðina? - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
13. mars 2020 14:30 til 16:00
Hvar 

Stakkahlíð / Háteigsvegur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Menntastefna: Hver mótar framtíðina? 

Pasi Sahlberg, prófessor frá Finnlandi og Jean Stiles, skólastjóri Argyll skólans í Alberta-fylki í Kanada eru meðal þeirra sem takast á við þessa knýjandi spurningu.

Til málanna munu einnig leggja: Arnór Guðmundsson, forstöðumaður Menntamálastofnunar, Ragnar Þór Pétursson, formaður KÍ og frá Menntavísindasviði þau Anna Kristín Sigurðardóttir, Jóhanna Einarsdóttir og Jón Torfi Jónasson prófessorar og Berglind Rós Magnúsdóttir dósent. Auk þeirra munu Helgi Grímsson, Soffía Vagnsdóttir og Fríða Bjarney Jónsdóttir frá Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar taka þátt í samtali við gesti og frummælendur.

Pasi Sahlberg er einn kunnasti fræðimaður heims á sviði menntunar. Metsölubók hans Finnish lessons: What can the world learn from educational change in Finland? hefur verið þýdd á íslensku.

Jean Stiles er skólameistari Argyll Centre í Edmonton og þekktur fyrirlesari. Argyll Centre hefur getið sér gott orð fyrir verkefnamiðað nám og nýjar leiðir til að tengja saman skóla og heimili til farsældar fyrir nám nemenda.

Kolbrún Þ. Pálsdóttir forseti Menntavísindasviðs leiðir málþingið ásamt J-C Couture. Couture er fyrrum skólastjóri og ráðgjafi Kennarasambands Alberta í rannsóknum og stefnumótun. Í dag er Couture aðjunkt við Menntavísindasvið Háskólans í Alberta og vinnur að rannsóknum á skólastarfi fyrir Edmonton borg.

Viðburðurinn er haldinn í samstarfi Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Menntamálastofnunar, Kennarasambandsins og Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. Viðburðurinn markar endalok fundaraðar þar sem fræðimenn og skólafólk rýndu í sameiningu í niðurstöður PISA frá ólíkum hliðum. 

Viðburðurinn fer fram á ensku.

Menntastefna: Hver mótar framtíðina?  Pasi Sahlberg, prófessor og höfundur metsölubókanna um Finnsku leiðina í skólamálum og Jean Stiles, skólastjóri Argyll skólans í Alberta-fylki í Kanada takast á við þessa knýjandi spurningu ásamt skólafólki, íslensku sem og erlendu. Anna Kristín Sigurðardóttir, prófessor á Menntavísindasviði og Ragnar Þór Pétursson formaður Kennarasambands Íslands verða með innlegg en auk þeirra munu fulltrúar frá Menntamálastofnun, Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar og Menntavísindasviði taka þátt í samtali við gesti og frummælendur. Kolbrún Þ. Pálsdóttir forseti Menntavísindasviðs og kanadíski skólamaðurinn J-C Couture stýra viðburðinum. Viðburðurinn fer fram á ensku.

Menntastefna: Hver mótar framtíðina?