FRESTAÐ: Líðan hinsegin ungmenna í skólum - hádegisspjall með fræðslustýru Samtakanna 78

Stakkahlíð / Háteigsvegur
E-301
ATH: Vegna óviðránlegra orsaka verður viðburðinum frestað um sinn.
Hvers vegna finnur þriðjungur hinsegin ungmenna til óöryggis vegna kynhneigðar í íslenskum skólum? Hvað getum við gert til að bæta ástandið hjá þeim fjölda hinsegin nemenda sem eru áreitt vegna kynhneigðar og kyntjáningar?
Tótla I. Sæmundsdóttir, fræðslustýra Samtakanna '78, kynnir niðurstöður könnunar Samtakanna '78 um líðan hinsegin ungmenna í skólum og býður upp á spjall við starfsfólk og nemendur Menntavísindasviðs um hvað kennarar, og starfsfólk sem menntar kennara, geta gert til að bæta ástandið.
Viðburðurinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Jafnréttisnefndar Menntavísindasviðs.
Tótla I. Sæmundsdóttir, fræðslustýra Samtakanna '78, kynnir niðurstöður könnunar Samtakanna '78 um líðan hinsegin ungmenna í skólum og býður upp á spjall við starfsfólk og nemendur Menntavísindasviðs um hvað kennarar, og starfsfólk sem menntar kennara, geta gert til að bæta ástandið
