Frestað - Félagsfræði þungarokks

Oddi
206
Dr. Owen Coggins leggur út af rannsókn sinni á tengslum svartþungarokks, samfélags og trúarbragða. Svartþungarokkið hefur löngum þrifist innan nokkurs konar undraheims, hvar náttúra og dulræn öfl spila sterka rullu, veri það fagurfræðilega eða upplifunarlega. Hlutverk stefnunnar; áhrif hennar á hópa sem einstaklinga, er síðan sett undir félagsvísindalegt mæliker.
Svartþungarokkið hefur verið þekkt fyrir að styðja við öfgakenndar kreddur í pólitík en minna þekkt er aðkoma þess að andlegu lífi, hylling þess á góðum og gegnum þjóðlegum siðum og innkoma þess í náttúruverndarstarfsemi. Dr. Coggins nýtir sér etnógrafíska aðferðafræði saman með gagnarannsóknum á fyrirliggjandi skrifum og hljóðritunum.
Dr. Owen Coggins, rannsakandi við Brunel University London
