Fjarkynning í framhaldsnámi við Deild menntunar og margbreytileika

Framhaldsnámsleiðir við Deild menntunar og margbreytileika verða kynntar í streymi föstudaginn 20.apríl kl. 14:20-15:30. Umsóknarfrestur um framhaldsnám við Háskóla Íslands hefur verið framlengdur til 20. maí (sjá umsóknarsíðu hi.is).
Á fjarkynningunum verða veittar upplýsingar um samsetningu hverrar námsleiðar, inntökuskilyrði, fyrirkomulag lokaverkefna, atvinnumöguleika og margt fleira. Þá verður hægt að senda inn spurningar í netspjalli um leið og kynningin fer fram.
Til að horfa á námskynningu smellið á Fjarkynningu við viðeigandi námskynningu og þá opnast streymið á netinu.
Dagskrá námskynningar Deildar menntunar og margbreytileika 20.apríl:
TÍMI KYNNING
14:20 Foreldrafræðsla og uppeldisráðgjöf / Fjarkynning
14:40 International Studies in Education / Online Introduction
15:00 Sérkennslufræði og skóli margbreytileikans / Fjarkynning
15:20 Uppeldis- og menntunarfræði / Fjarkynning