Fjarkynning í framhaldsnámi við Deild kennslu- og menntunarfræða

Framhaldsnámsleiðir við Deild kennslu- og menntunarfræða verða kynntar í streymi föstudaginn 20.apríl kl. 9:00-10:50. Umsóknarfrestur um framhaldsnám við Háskóla Íslands hefur verið framlengdur til 20. maí (sjá umsóknarsíðu hi.is).
Á fjarkynningunum verða veittar upplýsingar um samsetningu hverrar námsleiðar, inntökuskilyrði, fyrirkomulag lokaverkefna, atvinnumöguleika og margt fleira. Þá verður hægt að senda inn spurningar í netspjalli um leið og kynningin fer fram.
Til að horfa á námskynningu smellið á Fjarkynningu við viðeigandi námskynningu og þá opnast streymið á netinu.
Dagskrá námskynningar Deildar kennslu- og menntunarfræða 20.apríl:
TÍMI KYNNING
09:00 Stjórnun menntastofnana / Fjarkynning
09:20 Starfstengd leiðsögn og kennsluráðgjöf / Fjarkynning
09:40 Ertu með BA/BS gráðu og vilt verða kennari í leikskóla, grunnskóla eða framhaldsskóla? / Fjarkynning
10:00 Viltu verða leikskólakennari? / Fjarkynning
10:30 Kennsla yngri barna í grunnskóla / Fjarkynning