Fjarkynning í framhaldsnámi við Deild faggreinakennslu

Framhaldsnámsleiðir við Deild faggreinakennslu verða kynntar í streymi föstudaginn 20.apríl kl. 10:30-13:30. Umsóknarfrestur um framhaldsnám við Háskóla Íslands hefur verið framlengdur til 20. maí (sjá umsóknarsíðu hi.is).
Á fjarkynningunum verða veittar upplýsingar um samsetningu hverrar námsleiðar, inntökuskilyrði, fyrirkomulag lokaverkefna, atvinnumöguleika og margt fleira. Þá verður hægt að senda inn spurningar í netspjalli um leið og kynningin fer fram.
Til að horfa á námskynningu smellið á Fjarkynningu við viðeigandi námskynningu og þá opnast streymið á netinu.
Dagskrá námskynninga Deildar faggreinakennslu 20.apríl:
TÍMI KYNNING
11:00 Kennsla íslensku og erlendra tungumála í grunnskóla / Fjarkynning
11:20 Kennsla stærðfræði og náttúrugreina í grunnskóla / Fjarkynning
12:00 Kennsla list- og verkgreina í grunnskóla / Fjarkynning
12:40 Kennsla upplýsingatækni og miðlunar í grunnskóla / Fjarkynning
13:00 Kennsla samfélagsgreina í grunnskóla / Fjarkynning
13:20 Viltu verða framhaldsskólakennari? / Fjarkynning