Fjarkynning á framhaldsnámi við Heilbrigðisvísindasvið

Fjarkynningar
Heilbrigðisvísindasvið verður með fjarkynningar á spennandi framhaldsnámi við deildir sviðsins fimmtudaginn 16. apríl. Áhugasamir geta fylgst með kynningum á vimeo í beinni útsendingu úr Hátíðarsal Háskóla Íslands eða sótt kynningarnar eftir hentugleik á vef HÍ en kynningarnar verða aðgengilegar hér og má finna á sérstakri slóð eftir að þeim lýkur: https://www.hi.is/framhaldsnam_i_bodi
Einnig verður netspjall á meðan kynningum stendur og þar má spyrja um allt sem snýr að náminu. Ennfremur er hægt að senda inn fyrirspurnir varðandi framhaldsnám á Heilbrigðisvísindasviði með því að senda tölvupóst á deildirnar sem má finna hér: https://www.hi.is/heilbrigdisvisindasvid eða með því að senda tölvupóst á hvs@hi.is.
Dagskrá kynninganna:
Kl. 09:00 Hagnýt sálfræði (fjögur kjörsvið) - Streymi
Kl. 09:40 Lífeindafræði - Streymi
Kl. 10:00 Geislafræði - Streymi
Kl. 10:20 Líf og læknavísindi - Streymi
Kl. 10:40 Lyfjafræði - Streymi
Kl. 11:00 Lýðheilsuvísindi, faraldsfræði og líftölfræði - Streymi
Kl. 11:20 Hjúkrunarfræði - Streymi
Kl. 12:00 Matvælafræði - Streymi
Kl. 12:40 Næringarfræði - Streymi
Kl. 13:00 Hjúkrunarfræði, annað háskólapróf - Streymi
Kl. 13:20 Talmeinafræði - Streymi
Kl. 13:40 Kynfræði - Streymi
Kl. 14:00 Hagnýt atferlisgreining, þverfræðilegt nám Sálfræðideildar og Menntavísindasviðs - Streymi
Kl. 14:20 Ljósmóðurfræði - Streymi