Fatlaðar konur, ofbeldi og 112 vefgáttin

Á netinu
Málstofan fer fram á ensku - Táknmálstúlkun og skriftúlkun á íslensku.
Dagskráin er eftirfarandi:
- Rannveig Traustadóttir, forstöðumaður Rannsóknaseturs í fötlunarfræðum býður þátttakendur velkomna
- Þorbera Fjölnisdóttir, Kvennahreyfingu ÖBÍ. Kynnir niðurstöður rannsóknar um ofbeldi gegn fötluðum konum og aðgengi að stuðningsúrræðum (10 mín)
- Eliona Gjecaj, doktorsnemi í fötlunarfræðum. Segir frá rannsókn sinni um ofbeldi gegn fötluðum konum og aðgengi að réttlæti (10 mín)
- Sigríður Björk Guðjónsdóttir, Ríkislögreglustjóri. Kynnir aðgerðarteymi stjórnvalda um vitunarvakningu um ofbeldi og aðgerðir til að hindra það (10 mín)
- Magga Dóra Ragnarsdóttir, verkefnastjóri hjá 112 neyðarlínunni. Kynnir 112 vefgáttina (10 mín)
- Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir, verkefnastjóri hjá Landssamtökunum Þroskahjálp rekur aðkomu Þroskahjálpar að 112 neyðarlínunni og aðgengi kvenna með þroskahömlun og skyldar skerðingar að henni (10 mín)
- Spurningar og umræður
Alþjóðlegar rannsóknir sýna að fatlaðar konur eru mun líklegri en aðrar konur að vera beittar ofbeldi. Þrátt fyrir það, og þrátt fyrir að um sé að ræða alvarleg mannréttindfabrot, er ofbeldi gegn fötluðum konum enn falið og ósýnilegt og sjaldan brugðis við því af hálfu yfirvalda. Rannsóknir sýna að ofbeldi gegn konum og börnum hefur aukist í COVID-19 faraldrinum, einnig á Íslandi. Hér á landi hafa stjórnvöld brugðist við þessu með því að nýta nýja tækni við að þróa 112 vefgátt til vitundarvakningar og sem tæki til að takast á við og hindra ofbeldið.
Á Jafnréttisdögum standa Rannsóknasetur í fötlunarfræðum, Kvennahreyfing Öryrkjabandalags Íslands og Landssamtökin Þroskahjálp fyrir mástofu um þetta mikilvæga málefni og kalla saman fræðafólk, fulltrúa samtaka fatlaðs fólks og fulltrúa stjórnvalda til samtals um þekkingu og reynslu til að þróa leiðir til að hindra ofbeldi gegn fötluðum konum.
Á Jafnréttisdögum standa Rannsóknasetur í fötlunarfræðum, Kvennahreyfing Öryrkjabandalags Íslands og Landssamtökin Þroskahjálp fyrir mástofu um þetta mikilvæga málefni og kalla saman fræðafólk, fulltrúa samtaka fatlaðs fólks og fulltrúa stjórnvalda til samtals um þekkingu og reynslu til að þróa leiðir til að hindra ofbeldi gegn fötluðum konum. Málstofan fer fram á ensku - Táknmálstúlkun og skriftúlkun á íslensku.
