Er ég að klúðra þessu? - Fræðslukvöld Menntavísindasviðs og Fróðra foreldra
Stakkahlíð / Háteigsvegur
Skáli
Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Fróðir foreldrar hafa tekið höndum saman og standa saman að hagnýtri fræðslu fyrir foreldra barna í Reykjavík. Stefnt er að því að halda regluleg fræðslukvöld um fjölbreytt viðfangsefni er varða uppeldi barna og ungmenna.
Á fyrsta fræðslukvöldinu verða fjórir fræðimenn með stutt og aðgengileg erindi um matvendni, áhrif feðra, söngþroska og árangursríka uppeldishætti. Fræðslukvöldið fer fram miðvikudaginn 16. janúar kl. 20:00 í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands í Stakkahlíð og er yfirskrift fundarins: Er ég að klúðra þessu?
Dagskrá:
Bragðlaukaþjálfun – Hollráð til foreldra um matvendni barna
Anna Sígríður Ólafsdóttir, prófessor í næringarfræði
Íslenskir feður – bestir í heimi? – Hollráð til foreldra um mikilvægi jákvæðra tengsla milli föður og barns
Ársæll Már Arnarsson, prófessor í tómstunda- og félagsmálafræði
Málþroski og söngþroski – Hollráð til foreldra um söng og áhrif hans á þroska og máltöku barna
Helga Rut Guðmundsdóttir, dósent í menntunarfræði tónlistar
Ræðum í stað þess að rífast – Hollráð til foreldra um árangursríka og leiðandi uppeldishætti
Hrund Þórarins Ingudóttir, lektor í uppeldis- og menntunarfræði
Aðgangur er ókeypis og eru allir áhugasamir velkomnir. Skráning fer fram HÉR.