Einu sinni var... í framtíðinni
![Einu sinni var... í framtíðinni - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/phive_onceupon_2160x1080_is_2204_002_0.jpeg?itok=HSpooi5X)
Veröld - Hús Vigdísar
Einu sinni var... í framtíðinni
Stefnumót um stafræna miðlun og varðveislu menningararfs
Stefnumót um stafræna miðlun og varðveislu menningararfs verður haldið í Reykjavík 16. júní 2022, í Veröld - húsi Vigdísar, Háskóla Íslands.
Á stefnumótinu verða flutt erindi um stafrænan menningararf og framtíð arfleifðarinnar í sýndarheimum rædd í málstofum af um 30 innlendum og erlendum fyrirlesurum. Jafnframt mun gestum gefast tækifæri til að kynna sér um 20 tæknilausnir og afrakstur verkefna á þessu sviði, sem og nýsköpun eins og leiki, sýndarveruleika og upplifun byggða á menningararfinum.
Stefnumótið er lokaviðburður í verkefninu PHIVE (Promoting and preserving heritage in virtual environments) sem er samstarfsverkefni stutt af Norðurslóðaáætlun ESB og leitt af Gunnarsstofnun á Skriðuklaustri. Viðburðinum verður streymt og hægt verður að taka þátt gegnum netið. Skráning á stefnumótið fer fram á Eventbrite og er sætafjöldi takmarkaður.
Sjá nánar um ráðstefnuna og PHIVE verkefnið hér:
https://northernheritage.org/final-conference-program/