Doktorsfyrirlestur í umhverfis- og auðlindafræði - Ganna Gladkykh

Doktorsefni: Ganna Gladkykh
Heiti ritgerðar: Söguþræðir sjálfbærni, orkukerfi og líkanagerð (Connecting Energy System Modelling With Sustainable Energy System Narratives At a Global Scale)
Andmælendur voru:
Dr. Kirsten Jenkins, lektor við University of Edinburgh, Skotlandi.
Dr. Darren McCauley, prófessor við Erasmus University Rotterdam, Hollandi.
Dr. Valeria J. Schwanitz, prófessor við Western Norway University of Applied Sciences.
Leiðbeinendur:
Dr. Brynhildur Daviðsdóttir, prófessor í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands
Dr. Arnaud Diemer, dósent við Université du Québec à Montréal, Kanada
Dr. Sonia Schwartz, prófessor við University of Auvergne, Frakklandi
Einnig í doktorsnefnd: Dr. Sandrine Mathy, forstöðumaður rannsókna við CNRS, Grenoble Applied Economy Laboratory, Frakklandi
Dr. Ulrich Goluke, dósent við Business School Lausanne, Sviss
Um er að ræða sameiginlega doktorsgráðu með University Clermont Auvergne í Frakklandi og hefur doktorsvörnin þegar farið fram.
Ágrip
Í þessari ritgerð er rýnt hvað sjálfbær orkukerfi á heimsvísu fela í sér og hvaða aðferðafræði nýtist við hönnun á orkustefnu sem styður við sjálfbæra orkuþróun og hvernig meta skuli árangur aðgerða. Lögð er áhersla á líkanagerð og söguþræði (e: narratives) sem lýsa sjálfbærum orkukerfum. Fyrst voru núverandi líkön af orkukerfum og aðferðafræði við gerð þeirra metin í samhengi við sjálfbæra orkuþróun. Auk þess var hlutverk félagsvísinda í rannsóknum á sjálfbærri orku skoðað.
Rýnin leiddi í ljós eyður í rannsóknum á sjálfbærum orkukerfum sem urðu rannsóknarefni þessarar doktorsritgerðar m.a.: (1) Forsendur flestra núverandi líkana af orkukerfum eru óraunhæfar eða of einfaldar. Þetta getur rýrt gæði greininga sem koma frá slíkum líkönum, og þau þar með styðja ekki jafnvel við ákvarðanatöku; (2) Það er takmarkað hagnýtt gildi af fyrirliggjandi kenningum um sjálfbæra þróun orkukerfa; (3) Núverandi aðferðir taka ekki til þróunar orkukerfa á heimsvísu sem myndi styðja við heildstæðan skilning á tilgangi og langtímamarkmiðum sjálfbærrar orkuþróunar. Aukinn skilningur á sjálfbærum orkukerfum á heimsvísu myndi einnig styðja við hönnun á sjálfbærari orkukerfum. Í þessari ritgerð var reynt að fylla upp í þessar eyður.
Kvik kerfislíkön, jafnstöðu hagkerfi (e: steady state economics) og orkuréttlæti (e: energy justice) eru helstu kenningar og aðferðafræði sem er beitt í þessari rannsókn. Framlag rannsóknarinnar er m.a. 1. Spurningalisti sem skilgreinir hugmyndafræði sem hægt er að nýta sem leiðarvísi að líkanagerð af sjálfbærum orkukerfum; 2. Hugmyndafræði um jafnstöðu orkukerfi sem segir að grunnþarfir fyrir orku ætti að vera almennt markmið við uppbyggingu orkukerfa í samhengi sjálfbærrar þróunar; 3. Listi af forsendum fyrir þróun sjálfbærra orkukerfa byggt á kenningum um orkuréttlæti. Listann má nota sem leiðarvísi fyrir hönnun og mat á orkustefnu sem styður við sjálfbæra orkuþróun; 4. Kvikt kerfislíkan af aðgengi að rafmagni í þeim hluta Afríku sem er sunnan Sahara eyðimerkurinnar. Þetta líkan er dæmi um hvernig líkan af orkukerfum getur: i) verið samtvinnað hugmyndum um sjálfbæra orkuþróun og fyllt í eyður í aðferðafræði og rannsóknum á orkukerfum og ii) stutt við bætta stefnumótun og greiningum er varðar sjálfbær orkukerfi.