Skip to main content

Diplómanám í kennslufræði háskóla

Diplómanám í kennslufræði háskóla  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
23. mars 2021 14:15 til 15:00
Hvar 

Zoom

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Kynning á vegum Kennslunefndar Félagsvísindasviðs og Kennslumiðstöðvar Háskóla Íslands

Kennslufræði háskóla er 30 eininga viðbótardiplóma á meistarastigi fyrir háskólakennara og doktorsnemendur sem bera ábyrgð á kennslu á háskólastigi.

Námsleiðin var stofnuð á Menntavísindasviði Háskóla Íslands árið 2010 í samstarfi við Kennslumiðstöð Háskóla Íslands. Skipulag námskeiðanna og kennsluhættir byggja á hugmyndum um fræðimennsku í kennslu og taka mið af sambærilegum erlendum námsleiðum. Meginmarkmið námsins er að efla hæfni háskólakennara til að skipuleggja nám og kennslu á faglegan hátt. Lögð er áhersla á að viðfangsefni séu hagnýt og tengd kennslu þátttakenda.

Í kynningunni verður sagt frá skipulagi námskeiða í háskólakennslufræði, viðfangsefnum sem glímt er við svo og reynslu þeirra sem sótt hafa námskeiðin.

Fyrirlesari: Guðrún Geirsdóttur, dósent og deildarstjóri 

Kynning fer fram á Zoom

Guðrún Geirsdóttur, dósent og deildarstjóri 

Diplómanám í kennslufræði háskóla