Skip to main content

COVID-19: Borgaraþátttöku, vald stofnana og sameiginleg gæði

COVID-19: Borgaraþátttöku, vald stofnana og sameiginleg gæði - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
15. maí 2020 9:00 til 18:00
Nánar 
Aðgangur ókeypis

COVID-19 heimsfaraldurinn er mesta áskorun sem heimurinn hefur staðið frammi fyrir síðan á árum Heimskreppunnar og Seinni heimsstyrjaldarinnar. Afleiðingar hans verða miklar: Hagkerfi kunna að hrynja, það mun reyna gríðarlega á pólítíska forystu, leiðir til ákvarðana gætu breyst, jafnvel með byltingarkenndum hætti.

Munu þau pólitísku átök sem sem fylgja kreppunni birtast í samkeppni valdahópa um stuðning kjósenda eða hefur kreppan för með sér varanlegar kerfislægar breytingar bæði á innlendum og alþjóðlegum vettvangi? Ein mest spennandi spurningin núna er sú hvort að þessir erfiðleikar skapa vettvang fyrir aukna lýðræðislega þátttöku allra hópa í samfélaginu. Mun  ástandið draga úr nauðsyn þess að almenningur taki þátt í að móta stjórnarskrár, sem og önnur meiriháttar stefnumál? Mun krísan hafa varanleg áhrif á ríkjandi gildismat í samfélaginu eða auka áhuga fólks á félagslegri samvinnu og velferð? Gæti hún minnkað áherslu á einstaklingsfrelsi í stjórnmálaumræðunni?

Þessar spurningar og aðrar af sama toga verða til umræðu á ráðstefnunni, sem miðlað er alþjóðlega.

www.stjornarskra.hi.is og constitution.hi.is

Political Agency after Covid-19

COVID-19: Borgaraþátttöku, vald stofnana og sameiginleg gæði