Skip to main content

Arfleifð Mirabal-systranna: eitt hundruð ár frá fæðingu Minerva Mirabal

Arfleifð Mirabal-systranna: eitt hundruð ár frá fæðingu Minerva Mirabal - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
10. apríl 2026 12:00 til 13:00
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Stofa 104

Nánar 
Aðgangur ókeypis

In Spanish below.

Talía M. Tavárez flytur fyrirlestur um Mirabel-systurnar frá Dómíniska lýðveldinu í stofu 104 í Veröld - húsi Vigdísar, föstudaginn 10. apríl kl. 12:00-13:00. Kynnir: Magdalena Mejía T.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum námsgreinar í spænsku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands og fer fram á spænsku. 

Um fyrirlesturinn

Mirabal-systurnar voru fjórar systur frá Dóminíska lýðveldinu. Þær voru þekktar fyrir andóf gegn einræðisstjórn Rafaels Trujillo (1930-1961) og stóðu fyrir ýmsum mótmælaaðgerðum gegn yfirvöldum. Þrjár þeirra, þær Patria, Minerva og Maria Teresa, voru myrtar þann 25. nóvember árið 1960 af útsendurum Trujillo-stjórnarinnar. Uppþotin sem urðu í kjölfarið stuðluðu að falli stjórnarinnar árið 1961. Sameinuðu þjóðirnar tilnefndu daginn Alþjóðlegan baráttudag gegn kynbundnu ofbeldi (https://un.is/2024/11/25-november-althjodlegur-dagur-gegn-kynbundnu-ofbeldi-samstarf-unesco-skola/) og halda þannig á lofti arfleifð Mirabal-systra, eða „Fiðrildanna“ eins og þær voru gjarnan kallaðar.

Legado de las hermanas Mirabal: a un siglo del natalicio de Minerva Mirabal

Minerva Mirabal fue una abogada y activista de la República Dominicana. Junto a sus hermanas Patria y María Teresa, desafió la brutal dictadura de Rafael Trujillo (1930-1961). Tras múltiples encarcelamientos, Trujillo ordenó su asesinato el 25 de noviembre de 1960, convirtiéndolas en mártires de la democracia dominicana. La ONU designó tal fecha como Día Internacional de la Eliminación de la Violencia contra las Mujeres (https://www.un.org/es/observances/ending-violence-against-women-day), en un intento de institucionalizar la figura de las hermanas Mirabal, también conocidas como “Las Mariposas”.

Talía M. Tavárez

Arfleifð Mirabal-systranna: eitt hundruð ár frá fæðingu Minerva Mirabal