Annars hugar: Martyna Daniel

Edda
Fyrirlestrasal
Martyna Daniel, málari og kvikmyndatökumaður, flytur opinn fyrirlestur í fyrirlestraröðinni Annars hugar sem haldin er á vegum námsgreinarinnar Íslenska sem annað mál í samstarfi við Árnastofnun og Málvísindastofnun HÍ.
Haldið í fyrirlestrasal Eddu, þriðjudaginn 1. apríl kl. 15:00-16:00. Verið öll velkomin.
Um fyrirlesarann
Martyna Daniel er málari og kvikmyndatökumaður, fædd í Genf árið 1989, dóttir pólskrar móður og suður-amerísks föður. Eftir útskrift úr Kvikmyndaskólanum í Prag, þar sem hún sérhæfði sig í kvikmyndatöku, flutti hún til Íslands þar sem hún býr nú og starfar sem verkefnastjóri fjölmenningarmála hjá Borgarbókasöfnum Reykjavíkur. Martyna stofnaði ásamt fleirum listamannarekið rými í Reykjavík sem nefnist Listastofan sem hélt viðburði af ýmsu tagi, svo sem módelteiknistundir, skapandi lestrarkvöld, myndlistarsýningar og vinnusmiðjur á árunum 2015 til 2019. Um þessar mundir situr hún í stjórn Ós pressunnar og Póetík í Reykjavík og tekur þátt í að skipuleggja bókmenntaviðburði ásamt ýmsum rithöfundum, auk þess sem hún vinnur nú að sinni fyrstu skáldsögu.
Martyna Daniel.
