Alþjóðlegur dagur heimspekinnar

Hvenær
18. nóvember 2021 17:00 til 18:00
Hvar
Á netinu
Nánar
Aðgangur ókeypis
Ár hvert helgar UNESCO þriðja fimmtudag í nóvember heimspekinni. Í ár ætlar Menntavísindasvið HÍ að fagna þessum degi með samræðu Sókratesar við Soffíu Eiri um fyrirgefninguna. Á eftir samræðunni munu Ása Helga Proppé Ragnarsdóttir og Ólafur Páll Jónsson ræða við áheyrendur um þetta flókna viðfangsefni.
Samræðan hefst um klukkan 17 fimmtudaginn 18. nóvember og verður send út á Zoom. Þau sem vilja fylgjast með samræðunni og taka þátt í umræðu geta smellt á þennan hlekk.
Ár hvert helgar UNESCO þriðja fimmtudag í nóvember heimspekinni. Í ár ætlar Menntavísindasvið HÍ að fagna þessum degi með samræðu Sókratesar við Soffíu Eiri um fyrirgefninguna.
