Skip to main content

Alþjóðadagar 2023

Alþjóðadagar 2023 - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
8. nóvember 2023 11:40 til 10. nóvember 2023 22:00
Hvar 

Háskólasvæðið

Nánar 
Öll velkomin

Á dagskrá verða kynningar á möguleikum á námi erlendis, alþjóðatorg, happdrætti, barsvar, karaókí og margt fleira.

Alþjóðadagar eru árviss viðburður í Háskóla Íslands en markmið þeirra er að vekja athygli á alþjóðlegu samstarfi Háskólans og þeim fjölmörgu tækifærum sem standa nemendum og starfsfólki til boða um allan heim. 

DAGSKRÁ

Kynningar á skiptinámi og starfsþjálfun, sem eru opnar nemendum HÍ, verða í gangi alla dagana. Þá verða styttri námsdvalir kynntar en þeim er ætlað að gera enn fleirum kleift að taka hluta af náminu erlendis. 

Nemendur sem nú eru í skiptinámi og starfsþjálfun taka yfir Instagram Alþjóðasviðs og Háskólans og veita innsýn í námsdvöl erlendis og svara spurningum áhugasamra. 

Nemendur og starfsfólk getur einnig tekið þátt happdrætti og unnið til veglegra verðlauna. 

Stúdentakjallarinn verður jafnframt einn af miðpunktum Alþjóðadaga þar sem fjörið mun ráða ríkjum. Þar verður m.a. boðið upp karaókí, barsvar og DJ Rasley mun þeyta skífur.

ALÞJÓÐATORGIÐ
Fimmtudaginn 9. nóvember er svo komið að hápunkti Alþjóðadaga á Háskólatorgi milli kl. 11.30-13.30. Þar geta nemendur kynnt sér skiptinám, starfsþjálfun og sumarnám, auk náms á eigin vegum.

Fyrrum og núverandi skiptinemar, fulltrúar frá sendiráðum og fjölmörgum íslenskum stofnunum og félögum verða til viðtals á torginu. Svið og deildir innan HÍ og starfsfólk Alþjóðasviðs verða einnig á staðnum og veita upplýsingar um námsdvöl erlendis.

Starfsfólk Háskólans getur kynnt sér möguleika á kennara- og starfsmannaskiptum og öðrum kostum sem bjóðast innan Erasmus+.

Flautuleikarinn Anna Maria flytur pólsk popplög og Mariola Fiema, lektor í pólskum fræðum stýrir skemmtilegri spurningakeppni um Pólland.

Markmið Alþjóðadaga er að vekja athygli á alþjóðlegu samstarfi Háskólans og þeim fjölmörgu tækifærum sem standa nemendum og starfsfólki til boða um allan heim.

Alþjóðadagar 2023