Skip to main content

Afmælishátíð í tilefni af 80 afmæli tannlæknanáms við HÍ

Afmælishátíð í tilefni af 80 afmæli tannlæknanáms við HÍ - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
16. maí 2025 15:00 til 17:00
Hvar 

Læknagarður

Stofa 343

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Áttatíu ár eru í ár frá því að kennsla í tannlæknisfræði hófst við Háskóla Íslands en þau tímamót urðu árið 1945 í kjölfar laga sem samþykkt voru á Alþingi 4 árum áður. Í upphafi heyrði námið undir Læknadeild, þrír nemendur voru teknir inn á ári og fór kennslan fram í tveimur herbergjum á efri hæð aðalbyggingar HÍ.

Tannlæknadeild var stofnuð sem sérdeild innan Háskóla Íslands árið 1972. Hafin var bygging á húsnæði undir deildina árið 1980, byggingin kallaðist Tanngarður, núna Læknagarður. Tannlæknadeild var fyrsta starfsemin til að flytja í húsið í upphafi árs 1983 og hefur verið þar til húsa síðan. Á sama tíma var nemum jafnframt fjölgað í 8 á ári.

Tímamótanna verður minnst með móttöku í Læknagarði 16. maí.

Dagskrá:

  • Ellen Flosadóttir deildarforseti Tannlæknadeildar
  • Myndband um tannlæknisfræði frumsýnt
  • Logi Már Einarsson menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra
  • Jón Atli Benediktsson rektor HÍ

Fundarstjóri: Unnur Anna Valdimarsdóttir forseti HVS

Húsakynni Tannlæknadeildar verða skoðuð
Léttar veitingar í boði

Afmælishátíð í tilefni af 80 afmæli tannlæknanáms við HÍ.

Afmælishátíð í tilefni af 80 afmæli tannlæknanáms við HÍ