Skip to main content

Áfangamat Rúnu Sifjar Stefánsdóttur doktorsnema við Menntavísindasvið

Áfangamat Rúnu Sifjar Stefánsdóttur doktorsnema við Menntavísindasvið - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
21. ágúst 2020 13:30 til 14:30
Hvar 

Stakkahlíð / Háteigsvegur

K 205

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Áfangamat Rúnu Sifjar Stefánsdóttur við Menntavísindasvið

Krækja á útsendingu kynningar:

https://hi.cloud.panopto.eu/Panopto/Pages/Viewer.aspx?id=e3a14612-c754-4222-be2b-ac1600a9fe5f

21. ágúst nk. mun fara fram mat á doktorsverkefni Rúnu Sifjar Stefánsdóttur doktorsnema við Menntavísindasvið. Heiti verkefnisins er:

Svefn og svefnmunstur íslenskra unglinga
Breytingar á svefnmunstri íslenskra unglinga frá 15 til 17 ára og áhrif skólakerfis, einkunna og hugrænna þátta á svefn

Matið er í tvennu lagi; fyrst kynnir Rúna Sif rannsóknarskýrslu sína í stofu K 205 kl. 13.30– 14:30 og er sú kynning opin nemum í framhaldsnámi og starfsmönnum Menntavísindasviðs. Síðan er fundur þar sem matsnefnd fær tækifæri til að ræða rannsóknarskýrslu Rúnu Sifjar. Fundurinn er öðrum lokaður. Kynningin og fundurinn fara fram á ensku.

Tilgangur matsins er tvíþættur eins og fram kemur í Reglum um doktorsnám við Menntavísindasvið: Að meta hæfni doktorsnemans til að framkvæma rannsóknarverkefni sitt og að veita endurgjöf svo að verkefnið verði svo gott sem verða má.

Matsnefndin samanstendur af leiðbeinendum Rúnu Sifjar Stefánsdóttur, þeim: dr. Erlingi S. Jóhannssyni prófessor við Háskóla Íslands, meðleiðbeinanda dr. Robert Brychta, Rannsóknasérfræðingi viðt NIDDKD, Bethesda USA, sérfræðingi í doktorsnefnd dr. Hilde Stokvold Gundersen dósent Western Norway University, Bergen; utanaðkomandi prófdómurum, dr Birnu Baldursdóttur, lektor við Háskólann í Reykjavík, dr. Ragnhildi Káradóttur prófessor við University of Cambridge.

Atli V. Harðarsson er formaður matsnefndar og stýrir athöfninni og Sólrún B. Kristinsdóttir er ritari.