Skip to main content

Áfangamat: Guðmundur Edgarsson

Áfangamat: Guðmundur Edgarsson - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
27. maí 2025 13:00 til 14:00
Hvar 

Gimli

Stofa G-139

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Áfangamat: Guðmundur Edgarsson þriðjudaginn 27. maí 2025 kl. 13:00.

Enskur námsorðaforði íslenskra framhaldsskólanema og tengsl við námstengdan lesskilning og almennan orðaforða

Markmið þessarar doktorsrannsóknar er að kanna þekkingu 17–18 ára framhaldsskólanema á Íslandi á enskum námsorðaforða með hliðsjón af lesskilningi þeirra á náms- og fræðitextum og þekkingu þeirra á almennum orðaforða, í samhengi við jafnaldra þeirra í Skandínavíu. Þá er ætlunin að bera saman námsorðaforða nemenda nú við niðurstöður úr fyrri rannsóknum.

Matið er í tvennu lagi; fyrst kynnir Guðmundur rannsóknarskýrslu sína kl. 13–14 í stofu G-139 í Gimli og er sú kynning opin nemum í framhaldsnámi og starfsfólki Menntavísindasviðs. Hægt er að fylgjast með hér á Zoom: https://eu01web.zoom.us/j/68022101230      

Síðan er fundur þar sem matsnefnd fær tækifæri til að ræða rannsóknarskýrsluna. Fundurinn er öðrum lokaður. Tilgangur matsins er tvíþættur eins og fram kemur í Reglum um doktorsnám við Mennta­vísinda­svið: Að meta hæfni doktorsnemans til að framkvæma rannsóknarverkefni sitt og að veita endurgjöf svo að verkefnið verði svo gott sem verða má.

Prófdómarar eru dr. Elín Þöll Þórðardóttir prófessor við McGill Háskóla, Montreal, Canada og dr. Sif Einarsdóttir prófessor við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands.  Aðalleiðbeinandi er dr. Sigríður Ólafsdóttir dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, meðleiðbeinandi er dr. Jóhanna Thelma Einarsdóttir prófessor við Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands. Dr Amalía Björnsdóttir prófessor við Menntavísindasvið er formaður matsnefndar og stýrir athöfninni og Dr Steingerður Ólafsdóttir er ritari.