Áfangamat Evu Harðardóttur við Menntavísindasvið

Zoom
23. mars nk. mun fara fram áfangamat á doktorsverkefni Evu Harðardóttur við Menntavísindasvið. Heiti verkefnisins er:
Refugee youth, inclusion, and citizenship within national educational settings: moving towards a common world.
Doktorsverkefni Evu snýr að ungu flóttafólki, inngildingu og alþjóðlegri borgaravitund innan menntakerfa þjóða. Rannsóknin byggir á eigindlegum viðtölum við kennara, foreldra og nemendur með bakgrunn flóttafólks. Doktorsverkefnið er hluti af rannsóknarverkefninu I-PIC sem rannsakar og ber saman stöðu ungs flóttafólks í framhaldsskólum á Íslandi, Noregi og í Bretlandi. Í verkefninu er lögð áhersla á sjónrænar og þátttökumiðaðar kennslu- og rannsóknaraðferðir í anda photovoice þar sem unnið er með ljósmyndir og frásagnir nemenda með bakgrunn flóttafólks af inngildingu og borgaravitund í þremur ólíkum borgum.
Matið er í tvennu lagi; fyrst kynnir Eva rannsóknarskýrslu sína kl. 10.00– 11:00 og er sú kynning opin nemum í framhaldsnámi og starfsfólki Menntavísindasviðs. Síðan er fundur þar sem matsnefnd fær tækifæri til að ræða rannsóknarskýrslu Evu. Fundurinn er öðrum lokaður.
Tilgangur matsins er tvíþættur eins og fram kemur í Reglum um doktorsnám við Menntavísindasvið: Að meta hæfni doktorsnemans til að framkvæma rannsóknarverkefni sitt og að veita endurgjöf svo að verkefnið verði svo gott sem verða má.
Prófdómarar eru dr. Halla Hólmarsdóttir prófessor við Oslo Metropolitan University og dr Unnur Dís Skaptadóttir prófessor við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands. Aðalleiðbeinandi er dr. Berglind Rós Magnúsdóttir dósent við Menntavísindasvið og meðleiðbeinandi dr. Ólafur Páll Jónsson prófessor við Menntavísindasvið. Dr. Atli Harðarson dósent við Menntavísindasvið er formaður matsnefndar og stýrir athöfninni og dr. Steingerður Ólafsdóttir er ritari.
Zoom hlekkur:
https://eu01web.zoom.us/j/65327439614
Meeting ID: 653 2743 9614