Skip to main content

Aðgreining á áhrifum aldurs og kynslóða

Aðgreining á áhrifum aldurs og kynslóða - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
19. mars 2021 11:00 til 12:00
Hvar 

Zoom

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Fyrirlestur á vegum Hagfræðistofnunar

Föstudaginn 19. mars verða 35 ár liðin síðan Helgi Tómasson lauk doktorsprófi í tölfræði frá Gautaborgarháskóla. Í fyrirlestri sem hann heldur af því tilefni rekur hann þróun hugmynda um tölfræðilegt mat og ályktanir síðustu 100 ár. Sérstaklega er varað við ákveðinni notkun á marktæknihugtakinu. Hlutdrægni getur verið skynsamleg.

Ákveðinn vandi er á höndun þegar fyrir liggja mælingar á árlegri tíðni fyrir gefinn aldurshóp. Hér verður stungið upp á því að nálga þennan vanda með bayesískum aðferðum og mjúkum fordómum. Þessi aðferðafræði er byggð á bayesískri nálgun og gengur út á að breytingar séu ekki í stökkum.Tekið verður sýnidæmi um fjölda sjálfsvíga á ári eftir aldri. Aldursflokkarnir eru 70, tímabilin eru 39 og fjöldi metinna meðaltala því jafn fjölda mælinga eða 2730. Þessi aðferðafræði er náskyld Hodrcik-Prescott filter sem er vel þekkt úr hagsveiflufræðum.

Viðburður fer fram á Zoom

Helgi Tómasson, doktor í tölfræði

Aðgreining á áhrifum aldurs og kynslóða