Að breyta áskorunum í tækifæri með skapandi hugsun

ZOOM
Málþing á vegum Almannaheilla, samtaka þriðja geirans og Vaxandi, miðstöðvar um samfélagslega nýsköpun. Málþingið fer fram í streymi á Zoom. Hlekkur á streymi: https://eu01web.zoom.us/j/5593853749
Dr. Nick Spencer, hönnuður og dósent í nýsköpunarfræðum við Northumbria University í Bretlandi, heldur erindi um hvernig breyta megi áskorunum í tækifæri með hönnunarhugsun (e. design thinking). Dr. Spencer hefur unnið með fjölda stofnana og félagasamtaka við að skapa menningu þar sem glímt er við krefjandi áskoranir með skapandi hugsun að leiðarljósi. Þetta er gert með þátttöku hagsmunaaðila þar sem áhersla er lögð á að nýta styrkleika hvers og eins til að finna sameiginlega lausn.
Dagskrá:
- Opnun málþings
- Að snúa vandamálum upp í tækifæri með nálgun hönnunar. Dr. Nick Spencer, hönnuður og dósent í nýsköpunarfræðum við Northumbria University í Bretlandi.
- Umræður
Dr. Nick Spencer, hönnuður og dósent í nýsköpunarfræðum við Northumbria University í Bretlandi.
