12th Nordic Working Life Conference

Hotel Reykjavík Grand
Norrænir vinnumarkaðir eru almennt taldir dæmi um sveigjanleika, öryggi, gæðastörf og jöfn tækifæri. Rannsóknir benda þó til áskorana á ýmsum sviðum atvinnulífsins sem Norðurlöndin standa frammi fyrir. Fræðileg vinna, empíriskar rannsóknir og þekkingarsköpun á sviði vinnumarkaðsrannsókna veita fræðafólki, vinnumarkaðsaðilum, fagfólki og yfirvöldum mikilvæga innsýn og skapa forsendur fyrir áframhaldandi stefnumótun.
Á 12. norrænu vinnumarkaðsráðstefnunni sem verður haldin dagana 11.-13. maí 2026 á Hotel Reykjavík Grand verða 45 málstofur þar sem verða kynntar norrænar vinnumarkaðsrannsóknir sem ná til fjölbreyttra viðfangsefna meðal annars tengsla á milli aðila vinnumarkaðs, velferðarkerfa, vinnuverndar, sveigjanleika á vinnumarkaði og á vinnustöðum, tækniþróunar, gig hagkerfisins, jafnréttis kynjanna, sjálfbærni og atvinnuþátttöku hinsegin fólks, innflytjenda og fatlaðra. Auk þess halda prof. Marjut Jurkinen (University of Helsinki, FI), prof. Marlene Spanger (Aalborg University, DK) og prof. Guðbjörg Linda Rafnsdóttir (Háskóla Íslands, IS) aðalfyrirlestra sem snúa að rannsóknum um jafnrétti á vinnumarkaði og tækniþróun.
Norræna vinnumarkaðsráðstefnan er haldin á tveggja ára fresti og er nú komin til Íslands. Hér er einstakt tækifæri til að hlusta á kynningar um nýjustu rannsóknir í norrænu samhengi og eiga samtal við fræðafólk, aðila vinnumarkaðar, fagfólk og aðra aðila sem tengjast vinnumarkaðnum.
Aðilar úr íslensku atvinnulífi, yfirvöld, fagfólk og aðrir aðilar sem vilja koma og hlusta á erindin geta skráð sig á afsláttarverði með því að nota afsláttarkóðann VINNA2026 (ath. afslátturinn gildir ekki fyrir þátttakendur sem eru með skráð erindi).
Ráðstefnan er í samstarfi við tímaritið Nordic Journal on Working Life Studies.
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna má finna HÉR eða hafið samband með tölvupósti á NWLC2026@hi.is.
Nánari upplýsingar um dagskrá og skráningu má finna á heimasíðu ráðstefnunnar.
