Skip to main content

Tónlistin örvar tengslamyndun

„Tónlist verður snemma hluti af lífi okkar, því rannsóknir sýna að börn í móðurkviði byrja að heyra og nema tónlist á síðustu átta vikum meðgöngu. Þau geta munað ákveðin tónverk sem þau heyrðu á meðgöngu alveg upp í 6 mánuði eftir fæðingu,“ segir Helga Rut Guðmundsdóttir, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.

Helga Rut segir að þörf manneskjunnar fyrir tónlist sé óumdeild og auðvelt sé að benda á gildi tónlistariðkunar í daglegri umönnun barna strax frá fæðingu. „Tónlist örvar ekki aðeins skilningarvitin og almennan þroska, heldur einnig tengslamyndun milli foreldra og barna“.

Helga Rut hóf nýverið verkefni í samstarfi við Hitt húsið þar sem hún vinnur með notkun tónlistar í uppeldi ungra barna í hópi ungra mæðra og feðra. Börnin eru flest á bilinu mánaðar gömul til eins árs og foreldrarnir yngri en 25 ára. Verkefnið er hluti af stóru alþjóðlegu rannsóknarverkefni sem stýrt er frá Kanada. Helga Rut er eini fulltrúi Norðurlanda í samstarfinu. Rannsóknarverkefni innan netsins eru öll á sviði söngs í samfélögum, hvort sem er í skólum, meðal eldri borgara, með ungum börnum eða foreldrum. Meðal þátttökulanda utan Íslands og Kanada eru Bandaríkin, Bretland, Þýskaland, Ástralía og Brasilía.

 Helga Rut Guðmundsdóttir, lektor við Kennaradeild

„Tónlist örvar ekki aðeins skilningarvitin og almennan þroska, heldur einnig tengslamyndun milli foreldra og barna“.

Helga Rut Guðmundsdóttir

Markmið verkefnisins er að kanna viðhorf ungu foreldranna til söngs og tónlistar, að kanna hvort námskeiðið styrki þá í uppeldi barnanna og að meta þörfina fyrir slík námskeið. Sambærileg verkefni eru í gangi í hinum löndunum sem taka þátt í kanadíska samstarfsnetinu.

Helga Rut hefur haldið námskeiðið Tónlist með ungum börnum frá árinu 2003 þar sem foreldrar koma með börn sín í þeim tilgangi að læra aðferðir til að vinna með tónlistarþroska barnanna. „Á námskeiðinu er sungið, farið í hreyfileiki, dansað og leikið á hljóðfæri. Við vinnum alltaf með „lifandi“ tónlist og undirspil á gítar, píanó og önnur hljóðfæri. Hver einasta athöfn hefur markvissan tilgang og er foreldrum jafnóðum bent á þá þætti sem unnið er með en framsetningin er þannig að bæði foreldrar og börn upplifa einskæra gleði og ánægju saman,“ segir Helga Rut.