Skip to main content

Hegðun á vinnustöðum

„Rannsóknin mín snýr að vinnutengdri hegðun og er í raun atferlisgreining á vinnustöðum. Mikilvægi kerfisnálgunar og kerfisgreininga við stjórnun á frammistöðu starfsmanna og auknu öryggi þeirra er viðfangsefnið. Þar prófa ég mælitækið Behavioral Systems Analysis Questionnaire (BSAQ) við kerfisgreiningar. Forsenda þessa mælitækis er að litið er á vinnustaði eins og lifandi kerfi með mörgum samverkandi kerfum innanborðs og greiningin felst þá í því að koma auga á lykilbreytur innan kerfisins. Vinnustaðir eru því greindir sem kerfi frá toppi og niður að einstökum stöðugildum og allir mikilvægir ferlar eru fundnir og greindir,“ segir Jóhanna Ella Jónsdóttir, doktorsnemi í sálfræði.

Jóhanna Ella Jónsdóttir

„Rannsóknin mín snýr að vinnutengdri hegðun og er í raun atferlisgreining á vinnustöðum. Mikilvægi kerfisnálgunar og kerfisgreininga við stjórnun á frammistöðu starfsmanna og auknu öryggi þeirra er viðfangsefnið.“

Jóhanna Ella Jónsdóttir

Hún er meðeigandi Hugtaks – mannauðs- ráðgjafar þar sem hún kynntist áðurnefndu mælitæki og þar kviknaði áhugi hennar á að prófa það með kerfisbundnum hætti. Viðfangsefnið er tiltölulega nýtt af nálinni og fáar rannsóknir hafa verið gerðar á þessu sviði. „Þetta er afskaplega hagnýtt og rannsóknir mínar munu bæta við þann þekkingargrunn sem er til staðar innan vinnutengdrar atferlisgreiningar,“ segir Jóhanna Ella. 

Hún hefur þegar unnið tvær kerfisgreiningar, aðra hjá opinberri stofnun og hina hjá einkareknu fyrirtæki í tækniiðnaði. Hún segir að þær niðurstöður sem tiltækar eru sýni fram á gagnsemi þess að gera slíkar greiningar. Mikið umbótastarf hafi fylgt í kjölfar mælingarinnar, sérstaklega hjá iðnaðarfyrirtækinu. 

„Rannsóknin bætir við þann þekkingargrunn sem er til staðar í frammistöðustjórnun. Hún sýnir að hegðun er ein mikilvægasta breyta á vinnustöðum og að mikilvægt er að skoða fyrirtæki sem heild. Lítið sem ekkert er um rannsóknir af þessu tagi hér á landi og fáar eru til erlendis. Mínar rannsóknir verða vonandi kveikjan að enn fleiri rannsóknum og hagnýtingu þessa verkfæris í íslensku atvinnulífi,“ segir Jóhanna Ella. 

Leiðbeinandi: Zuilma Gabríela Sigurðardóttir, dósent við Sálfræðideild.