Skip to main content

Málefni norðurslóða í brennidepli

Kristinn Schram, forstöðumaður rannsóknaseturs um norðurslóðir

„Rannsóknasetrið tengir saman þverfaglegar rannsóknir um málefni norðurslóða. Það starfar innan Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og leggur áherslu á hlutverk ríkja, stofnana og óopinberra aðila í stjórnarháttum, menningu og samfélagi á norðurslóðum. Það hefur það að markmiði að styrkja rannsóknasamstarf og umræðu um málefni norðurslóða á Íslandi með opnum fyrirlestrum, ráðstefnum, útgáfustarfsemi og námsþróun, og með því að efla samstarf á þessu sviði við innlend og alþjóðleg tengslanet,“ segir Kristinn Schram, forstöðumaður nýs rannsóknaseturs um norðurslóðir við Háskóla Íslands og doktor í þjóðfræði.

Kristinn Schram

Kristinn segir málefni norðurslóða vera vaxandi rannsóknarefni sem brenni æ heitar á alþjóðasamfélaginu. Þar megi nefna stórvægilegar loftslagsbreytingar, öryggis- og friðarmál, hnattvæðingu, valdasamskipti þjóðernishópa og hugsanlega auðlindaupptöku og opnun sjóleiða.

Kristinn Schram

Kristinn segir málefni norðurslóða vera vaxandi rannsóknarefni sem brenni æ heitar á alþjóðasamfélaginu. Þar megi nefna stórvægilegar loftslagsbreytingar, öryggis- og friðarmál, hnattvæðingu, valdasamskipti þjóðernishópa og hugsanlega auðlindaupptöku og opnun sjóleiða. Þessi málefni tengist öll innbyrðis og hafi vaxið mjög að mikilvægi undanfarinn áratug. 

Kristinn, samstarfskona hans, Margrét Cela, doktorsnemi í alþjóðasamskiptum, og tengdir fræðimenn hafa kynnt niðurstöður rannsókna sinna og yfirstandandi rannsóknir á fjölmörgum fyrirlestrum og ráðstefnum og með margvíslegri útgáfu. Hann segir sífellt meiri athygli beinast að stjórnunarháttum á norðurslóðum sem varða áhrif loftslagsbreytinga. Nýlega voru tvær bækur gefnar út í ritröð setursins sem tengist þessu efni. 

„Mikilvægi þessara rannsókna fer nokkuð vaxandi. Sú umhvefisvá og auðlindahyggja sem beinist sérstaklega að norðurslóðum er íslensku samfélagi mikil áskorun. Þar eigum við, bæði ein og sér, sem og heimurinn allur, mikilla hagsmuna að gæta en við höfum einnig mikið fram að færa. Ein auðlindanna, sem ekki fær alltaf mikla umfjöllun, eru þær margvíslegu rannsóknir á málefnum norðurslóða sem byggst hafa upp í íslensku háskólasamfélagi,“ segir Kristinn.