Ólöf Garðarsdóttir, prófessor í sagnfræði við Kennaradeild
Í tímans rás hafa Íslendingar litið á sig sem vinnusama þjóð og langt fram eftir 20. öld tóku börn og ungmenni virkan þátt í vinnu af ýmsu tagi. Skólaárið var stutt og börn gjarnan send í sveit á sumrin. Ólöf Garðarsdóttir, prófessor í sagnfræði við Kennaradeild, rannsakar nú vinnu barna og ungmenna í íslensku samfélagi eftir 1940 þar sem áhersla er lögð á að skoða viðhorf viðmælenda til vinnu.
„Ég hef lengi fengist við rannsóknir sem snúa að börnum og hugmyndum um barnæsku. Þessi rannsókn byggist meðal annars á óformlegum viðtölum þar sem forvitnast er um upplifanir fólks af vinnu á uppvaxtarárunum. Hér er jafnt um að ræða launuð störf sem ólaunuð, utan sem innan heimilis, á almennum vinnumarkaði, í sveit og við barnagæslu, svo að fátt eitt sé nefnt,“ segir Ólöf.
Ólöf Garðarsdóttir
Ólöf rannsakar nú vinnu barna og ungmenna í íslensku samfélagi eftir 1940 þar sem áhersla er lögð á að skoða viðhorf viðmælenda til vinnu.

Rannsóknin er enn á byrjunarstigi, þó er það strax ljóst að flestir viðmælendur hafa jákvæð viðhorf til vinnu á uppvaxtarárum sínum og telja hana hafa haft mikilvæg áhrif á sjálfsmynd sína. Mjög algengt var að börn og ungmenni sem ólust upp í þéttbýli væru í sveit á sumrin þar til þau
voru orðin 13-14 ára. Þegar krakkar voru komnir á þennan aldur áttu þeir yfirleitt greiðan aðgang að ýmiss konar launavinnu í þéttbýlinu. Það þótti mun meiri upphefð að vinna á almennum vinnumarkaði en við störf sem sérstaklega voru ætluð börnum og unglingum.
Undanfarin ár hafa orðið miklar breytingar í íslensku samfélagi, sjaldgæfara er að ungmenni taki virkan þátt í atvinnulífinu og einskorðast vinna þeirra oft við örfáar vikur í vinnuskólanum. „Þótt atvinnuleysi sé ekki mikið á Íslandi í dag í alþjóðlegum samanburði hefur ungt fólk engan veginn sama aðgang að vinnu og áður var. Ekki er ólíklegt að þetta hafi með tíð og tíma í för með sér breytingar á viðhorfum til vinnu og vinnusemi,“ segir Ólöf, sem vonast til að rannsóknin varpi ljósi á þetta mikilvæga viðfangsefni.