Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar HÍ
Umræða um siðferði og siðfræðilegar spurningar hefur verið nokkuð áberandi í kjölfar efnahagshrunsins. Meðal þeirra sem látið hafa að sér kveða í þeirri umræðu er Salvör Nordal sem stýrir hinu fjölbreytta starfi sem unnið er innan Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands.
„Siðfræðistofnun hefur verið með ýmis rannsóknarverkefni á síðustu árum og þá er útgáfa bóka snar þáttur í starfinu. Það er mikið rætt um að auka kennslu í siðfræði á öllum skólastigum og maður finnur fyrir áhuga víða. Því er mjög mikilvægt að til sé efni á íslensku. Siðfræðistofnun hefur gefið út fjölmargar bækur um siðfræði í gegnum árin, m.a. ritröðina „Siðfræði og samtími,“ en í þeim bókum er fjallað um efni sem brenna á okkur í samtímanum,“ segir Salvör og nefnir tvær nýútkomnar bækur, „Siðfræði og samfélag“ og „Velferð barna: Gildismat og ábyrgð samfélags.“
Salvör Nordal
Það er mikið rætt um að auka kennslu í siðfræði á öllum skólastigum og maður finnur fyrir áhuga víða. Því er mjög mikilvægt að til sé efni á íslensku.

Ýmsir hópar í samfélaginu hafa leitað til Siðfræðistofnunar um ráðgjöf og rannsóknir. „Fyrsta rannsóknarverkefni Siðfræðistofnunar snerist um siðareglur starfsstétta. Í framhaldi af því varð ákveðin sprenging og margar stéttir hafa sett sér siðareglur á síðustu 20 árum. Hópurinn sem leitar til okkar hefur svo breikkað á síðustu misserum, ekki síst út af hruninu og Rannsóknarskýrslunni,“ segir Salvör, en hún sat ásamt Vilhjálmi Árnasyni, prófessor í heimspeki og stjórnarformanni Siðfræðistofnunar, í starfshópi sem vann að siðferðiskaflaRannsóknarskýrslu Alþingis. „Við Vilhjálmur höfum farið víða og haldið fyrirlestra um þessa vinnu okkar. Þá hefur stofnunin verið fyrirtækjum og opinberum stofnunum innan handar um gerð siðareglna.“
Salvör hefur einnig kennt siðfræði við Háskóla Íslands og bendir á að aukin áhersla verði lögð á greinina innan háskólans á næstu misserum. „Það er vaxandi skilningur á því að heimspekilegur og siðfræðilegur grunnur er nauðsynlegur í öllu námi. Fólk heldur að í tilteknum greinum hljóti maður að spyrja sig siðferðilegra spurninga en það er ekki þannig. Það verður að vekja þær,“ bendir hún á og segir spennandi verkefni fram undan enda glími samtíminn við margar stórar siðferðilegar spurningar.