Skip to main content

Rúntað í Reykjavík

Virgile Collin-Lange, doktorsnemi við Líf- og umhverfisvísindadeild

„Rúnturinn er mikilvægur hluti af lífi ungs fólks á Íslandi. Sem doktorsnemi í landfræði, sem er að rannsaka hugtakið hreyfanleiki og byrjendur í umferðinni, fór ég fljótt að velta fyrir mér hvernig ungir ökumenn nota rúntinn sem leið til þess að komast inn í umferðarmenninguna á staðnum,“ segir Virgile Collin-Lange. Hann flutti erindi á ráðstefnunni Þjóðarspeglinum í haust og kynnti rannsóknir sínar á hinum íslenska rúnti.

Virgile stóð frammi fyrir nokkrum vanda þegar kom að því að rannsaka fyrirbrigðið. „Það var áskorun að þróa rannsóknaraðferð sem myndi duga til að grípa unga ökumenn glóðvolga ef svo má segja, á meðan þeir væru á rúntinum. Ég notaði svokallaða „on the move“ aðferðafræði þar sem rannsakendur upplifa sjálfir hreyfanleika rannsóknarviðfangsins,“ segir hann enn fremur.

Virgile Collin-Lange

„Rúnturinn er mikilvægur hluti af lífi ungs fólks á Íslandi.“

Virgile Collin-Lange

Virgile fékk að sitja í bíl hjá 14 ungmennum á rúntinum og ræða við þau. „Niðurstöður viðtalanna fóru langt fram úr mínum væntingum. Ég komst að því að með því að rúnta geta ungir íslenskir ökumenn upplifað sig ungt fullorðið fólk; verið frjálsir, skemmt sér eins og þeir væru inni á krám sem þeir aka fram hjá,“ segir Virgile.

„Út frá sjónarhorni hreyfanleikarannsókna sýndi athugunin fram á mikilvægi rúntsins á Íslandi sem liðs í að ganga inn í umferðarmenninguna á staðnum og almennt mikilvægi þess konar athafna þegar kemur að notkun bíla. Rannsóknin kenndi mér einnig að maður á ekki að vera hræddur við að hugsa út fyrir rammann og sýna hugvitssemi þegar kemur að rannsóknaraðferðum. Það borgar sig og er líka skemmtilegt,“ segir Virgile að lokum.

Leiðbeinendur: Karl Benediktsson, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild, Edward Huijbens, Rannsóknamiðstöð ferðamála á Akureyri, og Tim Richardson, prófessor við Álaborgarháskóla.