Skip to main content

Líkanagerð af háhitasvæðum með ofurtölvu

Lárus Þorvaldsson, doktorsnemi við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild

„Reiknilíkaninu er ætlað að segja til um flæði heits vatns og gufu í jörðinni á háhitasvæðum,“ segir Lárus Þorvaldsson, doktorsnemi í vélaverkfræði, um líkan sem hann vinnur að í doktorsrannsókn sinni. „Hægt verður að beita líkaninu á núverandi vinnslusvæði, eins og á Hellisheiði, eða svæði sem verið er að spá í að virkja með tilliti til sjálfbærnisjónarmiða og arðsemi.“

Meistaranám Lárusar gekk út á arðsemisgreiningu lághitasvæða með núvirðisgreiningu. „Ágeng vinnsla í byrjun er mikilvæg frá arðsemissjónarmiði. Hins vegar fara sjálfbærnisjónarmið og arðsemissjónarmið ekki alltaf saman,“ segir Lárus og bætir við að öllu flóknara sé að útbúa reiknilíkan fyrir háhitasvæði en lághitasvæði. „Á lághitasvæðum er fyrst og fremst heitt vatn en á háhitasvæðum kemur gufan líka inn í reikninginn. Samspil þessara tveggja þátta gerir alla útreikninga mun flóknari.“

Lárus Þorvaldsson

Lárus er í samstarfi við Maríu Guðjónsdóttur doktorsnema sem hefur komið upp tilraunaaðstöðu til að kanna hvernig vatn og gufa flæða gegnum gljúpan jarðveg. „Ég sé um líkanagerðina og hún sér um tilraunirnar,“ segir Lárus. „Líkanagerðin sem ég vinn að er í raun stærðfræðidæmi sem lýsir orkuflæðinu á háhitasvæðum.“

Lárus Þorvaldsson

Lárus er í samstarfi við Maríu Guðjónsdóttur doktorsnema sem hefur komið upp tilraunaaðstöðu til að kanna hvernig vatn og gufa flæða gegnum gljúpan jarðveg. „Ég sé um líkanagerðina og hún sér um tilraunirnar,“ segir Lárus. „Líkanagerðin sem ég vinn að er í raun stærðfræðidæmi sem lýsir orkuflæðinu á háhitasvæðum. Líkanið inniheldur margar stærðfræðijöfnur og er svo viðamikið að stundum þarf ég að nota tölvuþyrpingu, svokallaða ofurtölvu, til að reikna dæmið til enda.“

„Niðurstöður rannsóknarinnar gagnast fyrirtækjum sem nýta jarðvarma á einhvern hátt og rannsóknarfyrirtækjum sem kanna hvar er vænlegast að bora,“ segir Lárus enn fremur.

Háskólasjóður Eimskipafélagins, Landsvirkjun og Íslenskur jarðvísindaklasi (GEORG) styrkja rannsóknina.

Leiðbeinandi: Halldór Pálsson, dósent við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræðiog tölvunarfræðideild.