Skip to main content

„Uppi á palli, inni í tjaldi“

Árni Guðmundsson, doktorsnemi við Menntavísindasvið

Hátt í 50 ára gamlar skýrslur um útihátíðir ungmenna eru Árna Guðmundssyni innblástur í rannsóknarverkefni sem er hluti af  doktorsnámi hans við Menntavísindasvið. Í rannsókninni fjallar hann aðallega um umdeildar útihátíðir, sem hann segir því miður vera alltof margar.

Árni Guðmundsson

Í rannsókninni fjallar Árni aðallega um umdeildar útihátíðir, sem hann segir því miður vera alltof margar.

Árni Guðmundsson

Þegar Árni vann að meistaraprófsritgerð sinni, „Saga félagsmiðstöðva í Reykjavík 1942-1992“, rak á fjörur hans skýrslur um útihátíðir ungmenna allt frá árinu 1963. Sjá má á skýrslunum að þá þegar hafi áhyggjur vaknað meðal forráðamanna Æskulýðsráðs Reykjavíkur og fleiri aðila af slíkum samkomum en þær voru oft óskipulagðar og haldnar án eftirlits. Árni kynnti sér einnig ítarlega umfjöllun dagblaða um útihátíðir. „Það sem vakti athygli mína var að flestar þessar hátíðir voru afar illa heppnaðar og blessuðum ungdómnum ávallt kennt um allt sem miður fór. Ýmislegt er hins vegar vel gert í þessum efnum, sérstaklega í seinni tíð, og má í þeim efnum nefna hátíð eins og unglingalandsmót UMFÍ,“ segir Árni.

„Þeir sem eldri eru ætlast til að unglingar á útihátíðum setji sér mörk og hagi sér samkvæmt ákveðnum reglum, sem unglingarnir vita ekki alltaf hverjar eru. Fullorðna fólkið gagnrýnir æskuna fyrir agaleysi en gleymir því að sem uppalendur ætti það sjálft að setja útihátíðum viðeigandi umgjörð en gerir ekki. Þó að foreldrasamfélagið hafi sett sér ýmis göfug og sameiginleg uppeldismarkmið þá er enn langt í land hvað þennan kima unglingamenningarinnar varðar,“ segir Árni að lokum.

Leiðbeinandi: Gestur Guðmundsson, prófessor við Uppeldis- og menntunarfræðideild.