Skip to main content

Staða hinsegin nemenda í framhaldsskólum

Jón Ingvar Kjaran, doktorsnemi við Menntavísindasvið

„Víða erlendis hafa umfangsmiklar rannsóknir verið gerðar á stöðu hinsegin nemenda innan skólakerfisins og hafa þær haft það markmið að bæta stöðu þessa hóps og gera tilveru hans sýnilegri. Það má segja að það sé einnig eitt meginmarkmið þessarar rannsóknar enda má ætla að sýnileiki og aukin vitneskja um hinsegin nemendur stuðli að betra skólaumhverfi fyrir þennan hóp.“ Þetta segir Jón Ingvar Kjaran, doktorsnemi við Menntavísindasvið, sem rannsakar stöðu hinsegin nemenda innan framhaldsskóla og hlaut til þess styrk úr Háskólasjóði Eimskipafélags Íslands.

Jón Ingvar Kjaran

„Víða erlendis hafa umfangsmiklar rannsóknir verið gerðar á stöðu hinsegin nemenda innan skólakerfisins og hafa þær haft það markmið að bæta stöðu þessa hóps og gera tilveru hans sýnilegri.“

Jón Ingvar Kjaran

Sjálfur hefur hann lengi kennt í framhaldsskóla og fundist að þar og innan skólakerfisins sé almennt lítið tekið á málefnum hinsegin nemenda. Hann bendir á að gildandi námskrá, jafnt fyrir framhalds- og grunnskóla, hafi verið hljóð um málefni og stöðu þeirra. „Rannsókninni er fyrst og fremst ætlað að svara fjórum spurningum: Í fyrsta lagi verður spurt hver sé reynsla hinsegin nemenda af framhaldsskólanum. Í öðru lagi er ætlunin af fá svör við því hvort umhverfi og menning framhaldsskólans einkennist af hinu gagnkynhneigða regluveldi/kvenfyrirlitningu og hvort enn séu til staðar innan hans fordómar í garð þessa hóps. Í þriðja lagi verður kannað hvernig hinsegin nemendur takast á við kynhneigð sína, hvernig þeim tekst að laga hana að umgjörð framhaldsskóla þar sem hið gagnkynhneigða er viðmið og hvaða fyrirmyndir auðveldi þeim eða hindri þá í að gera tilveru sína innan framhaldsskólans betri. Í fjórða lagi verður þáttur rýmisins skoðaður og hvaða áhrif það hefur á líðan hinsegin nemenda,“ segir Jón Ingvar.

Frumniðurstöður Jóns Ingvars benda til þess að stofnanabundinn heterósexismi í íslenskum framhaldsskólum sé kerfislægur í formgerð og menningu skólanna. „Hinsegin ungmenni upplifa stofnanabundinn heterósexisma daglega í samskiptum sínum við starfsfólk og samnemendur og birtist hann m.a. í skilningsleysi, óþægilegum spurningum og gagnkynhneigðri orðræðu. Skýringa á þessu má einkum leita í því hve ósýnilegir hinsegin nemendur eru í skólanum, svo og í kerfisbundinni þöggun, hvort sem hún er meðvituð eða ómeðvituð, um málefni þeirra og hagsmuni,“ bendir Jón Ingvar á.

Leiðbeinandi: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, prófessor við Kennaradeild.