Skip to main content

Samskipti Pólverja og Íslendinga í byggingariðnaði

Álfrún Sigurgeirsdóttir, MA-nemi við Félags- og mannvísindadeild

„Á góðæristímanum fjölgaði farandverkamönnum mikið í byggingariðnaðinum og Pólverjar voru þar í miklum meirihluta. Í lokaritgerð minni fjalla ég um vinnutengda fólksflutninga til Íslands með áherslu á byggingariðnaðinn,“ segir Álfrún Sigurgeirsdóttir, meistaranemi í mannfræði. „Ég skoða samskipti Íslendinga og Pólverja innan byggingariðnaðarins, hvernig þeir skapa ímyndir hver af öðrum, ólík viðhorf þeirra og stöðu,“ segir Álfrún, sem hefur komist að ákveðnum niðurstöðum.

Álfrún Sigurgeirsdóttir

„Á góðæristímanum fjölgaði farandverkamönnum mikið í byggingariðnaðinum og Pólverjar voru þar í miklum meirihluta. Í lokaritgerð minni fjalla ég um vinnutengda fólksflutninga til Íslands með áherslu á byggingariðnaðinn.“

Álfrún Sigurgeirsdóttir

„Úrvinnsla gagna bendir til þess að þrátt fyrir yfirlýstan velvilja og jafnréttisviðmið hafi misrétti innan geirans viðgengist. Hún bendir enn fremur til ákveðins hroka í garð Pólverja, að litið hafi verið á þá sem ódýrt vinnuafl og að þeim hafi ekki boðist að vinna á sömu kjörum og íslenskum starfsbræðrum þeirra. Jafnframt má ráða af gögnunum að Íslendingar hafi reynt að skapa ímynd af pólsku verkamönnunum sem gæti, að einhverju leyti, réttlætt þessa mismunun. Pólverjarnir hafi hins vegar andmælt þeirri ímynd með staðhæfingum um eigin yfirburði í vinnu og óvandvirkni og leti Íslendinga. Gögnin benda enn fremur til þess að ímyndarsköpunin hafi verið gagnkvæm þó að samningsstaða hópanna hafi vissulega verið gerólík,“ segir Álfrún.

Hún segir að kveikjan að rannsókninni hafi verið þátttaka hennar í samstarfsverkefni á vegum háskólans Collegium Civitas í Varsjá, Háskóla Íslands og Rannsóknaseturs um fólksflutninga  og fjölmenningu. Afrakstur samstarfsverkefnisins er bókin „Integration or  assimilation? Polishimmigrants in Iceland“ en verkefnið var fjármagnað af styrktarsjóði á vegum EFTA-landanna þriggja, Noregs, Íslands og Liechtensteins. Álfrún segir lokaverkefni sitt hafa þríþætt gildi. „Það er framlag til rannsókna á sviði fólksflutninga og tekur á fræðilegum spurningum á sviðinu. Það varpar einnig ljósi á mikilvægar breytingar í íslensku samfélagi sem urðu samfara auknum fjölda innflytjenda.“

Leiðbeinandi: Unnur Dís Skaptadóttir, prófessor við Félags- og mannvísindadeild.