Samtal um skapandi greinar: Auglýsingar - fortíð, nútíð, framtíð

Gróska
Rannsóknasetur skapandi greina (RSSG), í samstarfi við Samtök íslenskra auglýsingastofa (SÍA), Miðstöð hönnunar og arkitektúrs og CCP, býður í samtal um skapandi greinar fimmtudaginn 7. maí klukkan 8:30 –10:00 í húsakynnum CCP Í Grósku, 3. hæð, að Kristínargötu 1, 102 Reykjavík.
Viðburðurinn er á dagskrá HönnunarMars 2026 og erindin verða einnig í beinu streymi.
Á samtalinu verður fjallað um hvernig auglýsingageirinn hefur þróast á undanförnum árum og þær áskoranir og tækifæri sem auglýsingastofur standa frammi fyrir, ekki síst í tengslum við nýja tækni. Hvað hefur breyst og hvernig mun auglýsingageirinn líta út eftir 10 ár?
Eftirfarandi fyrirlesarar mæta á staðinn og í kjölfarið verður opnað fyrir spurningar úr sal.
- Erla María Árnadóttir, stefnustjóri sköpunar hjá Hvíta húsinu
- Anna Kristín Kristjánsdóttir, formaður SÍA - Samtaka íslenskra auglýsingastofa
- Sigtryggur Magnason, forstöðumaður miðlunarsviðs hjá Samtökum atvinnulífsins
CCP býður fundargestum upp á kaffi og léttan morgunverð.