Tungumálatækni fyrir okkur öll: Eiga fámennismál sér vísan stað í stafrænni framtíð?

Edda
Fyrirlestur Guilherme Canela, forstöðumanns sviðs stafrænna málefna og stefnumótunar hjá UNESCO
Verið velkomin á fyrirlestur Guilherme Canela, forstöðumanns sviðs stafrænna málefna og stefnumótunar hjá UNESCO, fimmtudaginn 7. maí kl. 13:00 í fyrirlestrasal Eddu.
Í fyrirlestrinum fjallar Guilherme Canela um nýja alþjóðlega vegvísi UNESCO um fjöltyngi á stafrænum tímum. Þar er meðal annars spurt hvort og hvernig öll tungumál geti notið góðs af gervigreind og tungumálatækni og hvernig hægt sé að tryggja að stafræn þróun auki ekki ójöfnuð.
Þessar spurningar eiga sérstaklega vel við á Íslandi, bæði vegna vinnu við að styrkja íslensku á stafrænum tímum og vegna áherslu Vigdísarstofnunar á alþjóðlegt samstarf í á sviði fámennismála.
Fyrirlesturinn er skipulagður af Vigdísarstofnun og íslensku UNESCO-nefndinni og er hluti af dagskrá UNESCO-dagsins 2026.
Aðgangur er ókeypis.
Öll velkomin.
---
Fyrirlestur Guilherme Canela, forstöðumanns sviðs stafrænna málefna og stefnumótunar hjá UNESCO.
