Skip to main content

A Visit to Helgafell. How the Sagas Relate to Modern Life

A Visit to Helgafell. How the Sagas Relate to Modern Life - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
21. maí 2026 17:00 til 18:00
Hvar 

Edda

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Bandaríski rithöfundurinn Nancy Marie Brown flytur fyrirlestur í Eddu fimmtudaginn 21. maí kl. 17.

Í þessum fyrirlestri, sem Vinafélag Árnastofnunar stendur fyrir, talar bandaríski rithöfundurinn Nancy Marie Brown út frá eigin reynslu en hún hefur bæði skrifað um íslenska miðaldasögu og þjóðfræði.

Meðal fræðibóka hennar má nefna The Far Traveler, sem fjallar um ferðalög norrænna manna til Norður-Ameríku frá sjónarhorni konu; Songs of the Vikings, um rithöfundarferil Snorra Sturlusonar; Ivory Vikings, þar sem því er haldið fram að Margrét hin haga hafi skorið út taflmennina frá Ljóðhúsum (e. Lewis chessmen) fyrir Pál Jónsson biskup; The Real Valkyrie, rannsókn á veröld stríðskonu sem grafin er í Birka í Svíþjóð (gröf Bj 581) og Looking for the Hidden Folk, um álfatrú Íslendinga.

Nancy mun sýna fram á hvernig og hvers vegna íslenskar fornbókmenntir og þjóðsögur eiga enn erindi við nútímalesendur en hún heldur því fram að þar megi finna ráð til að bregðast við umhverfis- og þjóðfélagsvá samtímans.