Vanþekking innan heilbrigðiskerfis út frá femínískri þekkingarfræði

Veröld - Hús Vigdísar
Stofa 008
Rannsóknarverkefnið Flæðandi siðfræði heldur málþing um vanþekkingu innan heilbrigðiskerfisins um heilsu kvenna. Málþingið verður haldið í stofu 008 í Veröld, fimmtudaginn 30. apríl kl. 14:00-16:00 og fer fram á ensku. Verið öll velkomin.
Fyrirlesarar eru Julia Vélez Ramos, Anna Gotlib, Emma Rivard Henriot and Nanna Hlín Halldórsdóttir.
Femínsk fræði hafa sýnt fram á hvernig að líkamar kvenna hafa verið hunsaðir innan læknavísinda og heilbrigðiskerfisins, hvernig að ákveðin þekking hefur verið hunsuð eða vísað á bug og hvernig þrýst hefur verið á fólk og samfélög að láta af mikilvægri þekkingu á sinni eigin líkamsstarfsemi. Á þessu málþingi verður femínísk þekkingarfræði innan heimspekinar nýtt til þess að skoða mikilvægar siðferðislegar spurningar um hvernig megi huga að heilsu kvenna innan heilbrigðiskerfisins og samfélagsins almennt.
Rannsóknarverkefnið Flæðandi siðfræði heldur málþing um vanþekkingu innan heilbrigðiskerfisins um heilsu kvenna.
