Skip to main content

Komdu í pottaspjall!

Komdu í pottaspjall! - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
6. maí 2026 13:30 til 16:00
Hvar 
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Við bjóðum upp á notalega sundferð 6. maí þar sem við hittumst kl. 13:30 í anddyri Laugardalslaugar í nágrenni Háskóla Íslands og förum saman í pottinn. 

Markmið verkefnisins er tvíþætt. Annars vegar viljum við kynna erlendum nemum og öðrum áhugasömum fyrir séríslenskri sundmenningu – sú hefð að hittast reglulega í sundlaugum, slaka á í heitum pottum og eiga samtöl um lífið og tilveruna. Hins vegar viljum við skapa opið og öruggt rými fyrir fólk sem upplifir einmanaleika eða félagslega einangrun og bjóða upp á vettvang til að mynda tengsl og kynnast nýju fólki.

Dagurinn hefst á stuttri og aðgengilegri fræðslu um íslenskar sundlaugar og þá menningu sem hefur mótast í kringum þær. Að því loknu verður óformlegt spjall í pottinum þar sem allir taka þátt á sínum forsendum og eftir eigin þægindaramma. Engin krafa er um sérstaka þekkingu eða virkni – markmiðið er einfaldlega notaleg samvera yfir daginn. Mikilvægt er að mæta með sundföt og handklæði. Þátttakendur þurfa EKKI að greiða fyrir aðgang í laugina.

Endilega skráið ykkur á viðburðinn með því að senda póst á emailið aag11@hi.is Hlökkum til að sjá ykkur í pottinum! Aldís, Arna og Þorbjörg

Við bjóðum upp á notalega sundferð 6. maí þar sem við hittumst kl. 13:30 í anddyri Laugardalslaugar í nágrenni Háskóla Íslands og förum saman í pottinn. 

Komdu í pottaspjall!