Skip to main content

Fjársjóðsleit með máltækni

Fjársjóðsleit með máltækni - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
14. apríl 2026 12:00 til 13:00
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Stofa 108

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Eydís Huld Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Tiro ehf, heldur fyrirlestur í fyrirlestraröð Miðstöðvar stafrænna hugvísinda og lista. Fyrirlesturinn nefnist Fjársjóðsleit með máltækni.

Haldið í stofu 108 í Veröld, þriðjudaginn 14. apríl kl. 12:00 til 13.00. Verið öll velkomin.

Í fyrirlestraröð MSHL kynna sérfræðingar úr ýmsum greinum stafrænna hugvísinda og lista rannsóknir sínar í stuttum og aðgengilegum fyrirlestrum. 

Þau sem eiga ekki heimangengt geta fylgst með fyrirlestrunum í streymi á YouTube-rás MSHL

Smellið hér til að kynna ykkur dagskrá fyrirlestraraðarinnar.

Um fyrirlesturinn

Hvernig er það, er ekki hægt að nýta máltækni og gervigreind til að yfirfæra tal sem finnst á hljóðupptökum fortíðarinnar yfir í leitarbæran texta? Jú enimitt, máltæknifyrirtækið Tiro hefur tekið þátt í verkefnum af því tagi með Árnastofnun og RÚV. Ávinningurinn fyrir þessa aðila hefur verið mikill og jafnvel meiri en búist var við í upphafi. Svo er aldrei að vita nema að það finnist áður óþekktir fjársjóðir inná milli?

Eydís Huld Magnúsdóttir.

Fjársjóðsleit með máltækni