Málþing um rannsóknina: Að alast upp í stafrænni Evrópu

Hvenær
8. apríl 2026 15:00 til 17:30
Hvar
Oddi
101
Nánar
Aðgangur ókeypis
Á málþinginu verður kynnt ný evrópsk langtímarannsókn, Growing Up in Digital Europe (GUIDE) en hún fylgir börnum og fjölskyldum þeirra yfir tíma. Ef rannsóknin verður lögð fyrir á Íslandi, mun hún ná að varpa ljósi á hvernig þættir tengdir fjölskyldu, skóla, jafningjum, nærumhverfi og stafrænum veruleika fléttast saman í daglegu. Mikilvægt er að safna gögnum um þessa þætti til þess að styðja stefnumótun um farsæld barna til framtíðar.
Á málþinginu mun íslenskt fræðafólk gera grein fyrir stöðu þekkingar á Íslandi og þrír af aðalrannsakendum GUIDE munu segja frá rannsókninni með áherslu á hvernig hún getur stuðlað að farsæld barna og ungmenna í álfunni.