Örgagnaþjónusta Hagstofa Íslands

Hvenær
9. apríl 2026 14:00 til 15:00
Hvar
Gimli
Stofa 139
Nánar
Aðgangur ókeypis
Á kynningu á Örgagnaþjónustunni fyrir Félagsvísindasviðs er m.a. fjallað um hvernig aðgengi að rannsóknargögnum Hagstofunnar er háttað, hvaða möguleikar eru í boði og annað sem þarf að hafa í huga.
Örgagnaþjónusta
Hagstofa Íslands veitir aðilum með ríkar rannsókna- og greiningaþarfir og getu aðgang að örgögnum um íslenskan efnahag og samfélag til tölfræðilegra greininga, svo sem háskólum, rannsóknastofnunum og greiningadeildum innan stjórnsýslu, Seðlabanka og annarra tölfræðistofnana. Þar sem öll gögn sem Hagstofan safnar til hagtölugerðar eru trúnaðargögn er aðgangur einungis veittur að dulkóðuðum gögnum í gegnum tengingu við örugga sýndarvél stofunarinnar.
