Miðbiksmat í líffræði - Francesco Golin

Askja
Stofa 128
Heiti ritgerðar: Milli Atlantshafs og Norður-Íshafs: Breytingar í samfélögum botnfiska við Ísland eftir dýpi og áhrif þeirra á verndun og stjórnun sjávar
(Between the Atlantic and the Arctic: Icelandic groundfish community dynamics across depths and their implications for marine conservation and management.)
Nemandi: Francesco Golin
Doktorsnefnd:
Dr. Haseeb Randhawa, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands
Dr. Ingibjörg G. Jónsdóttir, sjávarvistfræðingur við Hafrannsóknastofnun, Íslands
Dr. Julian M. Burgos, sjávarvistfræðingur við Hafrannsóknastofnun, Íslands
Dr. Martin O. Lindegren, prófessor við Þjóðstofnun um vatnaauðlindir og Miðstöð haflífs, DTU Aqua, Danmörku.
Ágrip
Sjávarvistkerfum um allan heim er ógnað sökum loftslagsbreytinga og ofveiði. Tegundir bregðast oft við þessari streitu með breytingum á útbreiðslu- og þéttleikamynstri sínu, sem hefur áhrif á samsetningu líffræðilegra samfélaga og virkni vistkerfa. Þegar hefur orðið vart við breytingar á mismunandi subarktískum svæðum og á mismunandi dýpi, sem skapar hættu fyrir líffræðilega fjölbreytni og þjónustur vistkerfanna. Þetta viðvarandi verkefni rannsakar hvernig umhverfisaðstæður og starfsemi mannsins hefur áhrif á samsetningu íslenskra djúp- og botnsjávarssamfélaga fiska. Við notum joint species distribution model (JSDM) til að meta áhrif nokkurra náttúrulegra og mannlegra þátta á útbreiðslu fiskitegunda og vísa byggða á eiginleikum tegunda til að mæla næmni samfélaga gagnvart hitastigi sjávar og veiðiþrýstingi. Með því að samræma þessar tvær nálganir stefnir verkefnið að því að aðgreina forgangssvæði fyrir náttúruvernd, bæði núna og í framtíð (2030 og 2050). Niðurstöðurnar munu styðja við upplýsta stefnumörkun um rýmisskipulag í íslenskum sjóum og stuðla að því að ná 30x30 markmiðinu um líffræðilega fjölbreytni sem mun hafa langtíma jákvæð áhrif á bæði hafvistkerfi og samfélagið.
Francesco Golin
